Ég hef verið löt hér að undanförnu....en smá bragarbót á því ...

Nú eru pabbi og mamma flogin út í heim ......flugu til sinna árlegu dvalar á Kanarí...Cool þau ætluðu sko ekki að missa af fluginu....  þau voru mætt tímalega á völlinn ....eða 4 tímum fyrir flug...Grin og geri aðrir betur .......... ég hefði sko alveg viljað slást í för með þeim ....þau ætla nú að vera í 7 vikur og koma til baka 1.apríl.....Tounge Hafliði og Gugga ætla til þeirra 25 febrúar ásamt fleirum úr ættinni.......

Af öðrum er það að frétta að Ólöf kom sá og sigraði í söngvakeppni samfés í sinni félagsmiðstöð..Grin  Það veitir henni aðgang að aðalkeppni Samfés sem er fram í Laugardalshöll þann 21.febrúar og verður keppninni útvarpað ...svo þeir sem vilja hlusta á hana geta það, keppnin hefst kl. 14.00.  Hún hefur líka verið að keppa á fullu í handboltanum og hefur einnig  keppt með 3.fl  undanfarið .....mér finnst þetta svolítið  mikið en hún verður að finna það út sjálf..... þær eru efstar bæði í 4 og 3 flokki og komnar með bæði liðin í undankeppni í bikarnum.....Smile  í dag byrjuðu svo æfingar á Gilitrutt sem Tónlistarskólinn ætlar að setja upp og sýna í Óperunni.......þannig að það er engin lognmolla í kringum mína ...hún finnur sér alltaf eitthvað að gera..Halo 

Það er mikið um að vera í leikskólanum þessa dagana, skólinn verður 40 ára á morgun 12.febrúar og ætlum við að gera okkur dagamun og bjóða aðstandendum og gestum upp á kaffi kl 15.00-16.30 ...það er  mikil spenningur hjá börnunum ..Wink   Svona til gamans þá er ég búin að vera leikskólastjóri þarna síðan í águst 1988 eða rúm 20 ár. 

Það er annars allt gott að frétta að drengjunum mínum þeir eru að plumma sig ágætlega ...
Palli og Herdís eru komin með naggrísi og ekki bara einn heldur tvo.... Tounge  Þórður hefur verið með einhverja flensu en er nú að komin á fætur og farin að vinna aftur en skólinn er í vetrarfríi þessa viku.  Hann stefnir á að koma heim í tvær vikur í sumar og hafa þá Emilie með sér ....Wink 

Annars hefur frúin dottið illilega niður í fésbókina, mér finnst gaman að þessu formi samskipta og hef komist í tengsl við fólk aftur sem ég var í sambandi áður fyrr. ... bara gaman að því ...nú erum við búin að stofna hóp fyrir ættarmótið í sumar og þarna flykkjast ættingjarnir inn ...bara frábærtSmile

 

"Við stjórnum sjálf viðhorfum okkar og hugsunum"

þar til næst   Halo


Hera Björk.....langflottust....

Ég settist niður við sjónvarpið og horfði á dönsku evróvisijon keppnina kl. 19.00....Toungeætlað  sko ekki að missa af því að Hera tæki þetta með stæl.....Haloog hún gerði það svo sannarlega þó svo Danirnir hefðu ekki klárað þetta og kosið hana áfram til Rússlands........Frownþá var hún sigurvegari í mínum huga .....Grinlagið var frábærlega  vel flutt og þetta var grípandi lag svo ég varð nokkuð vonsvikin að hún skildi ekki vinna .........Blushen verst er að við getum ekki nýtt okkur þetta lag hennar......Happyþví mér finnst ekki neitt lag heilla mig neitt sérstaklega í íslensku keppninni.......nema ef vera skildi Jóhanna Guðrún og Johgvan færeyski.....en það kemur nú í ljós fljótlega hvern við sendum til að keppa við danska strákinn sem Stal sigrinum af Heru okkar.....Errm En bara enn og aftur Hera Björk var langflottust og ég óska henni als hins besta í framtíðinni...

http://www.dr.dk/melodigrandprix/forside2009.htm


Mér líður vel núna ..komin heim...þar er nú best..

En vikan hefur verið erilsöm ....svo það er gott að vera komin heim og geta bara hringað sig fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna......Grin  Það er fyrst frá því að segja að ekki fór Ólöf í gegnum síuna um hlutverk í Söngvaseið ....en líklega var hún of hávaxin í hlutverkið því hún var höfðinu hærri en þær sem fóru áfram í lokaprufuna.....en hún er sátt og gleðst með vinkonu sinni sem fékk hlutverk.....Tounge  Hún snéri sé þá að því að æfa lag fyrir undankeppni Samfés í söngvakeppni félagsmiðstöðvanna og er nú að keppa úti í Árseli..... InLove við komum heim  á handahlaupum nú um kl 19.30 en keppnin átti að byrja um kl.20.00...... Ólöf fór nefnilega að keppa í handbolta suður í Hafnarfjörð nú kl. 18.00 og ég get sagt ykkur að ég hef aldrei horft á eins svakalegan leik og þennan leik, á móti Haukum í Strandgötunni, hann var ótrúlega harður og ruddalegur...Errm en ég er fegin að allar nema ein komust nokkuð klakklaust frá honum og viti menn þær eiga að hitta þær aftur í bikarkeppninni á næsta þriðjudag.....Angry  ...en við uuuuuuunnnnum.... vei.Grin

Eiginmaðurinn er nú á herrakvöldi Fylkis eins og um 8-900 aðrir karlmenn....þetta er yfirleitt mikið hátiðarkvöld  fyrir alla karlmenn í Árbæjarhverfi.....og mikið tilhlökkunarefni hjá mörgum...Tounge  Við

héldum okkar árlega þorrablót í leikskólanum og borðuðum þorramat og skemmtum okkur saman í sal......starfsfólk mætti flest í lopapeysum af ýmsum gerður og svo voru tveir í upphlut.....eða í "gömlum sparikjólum " eins og eitthvert barnið sagði..... Grin 

bondadagur09 071

Fréttir vikunnar og atburðir hafa litað umræðu og líðan fólk í kringum okkur þessa viku ....fjölskyldu og vina meðlimir hafa þurft að standa frammi fyrir skrílnum á Austurvelli sem hefur haft það að leiðarljósi að vera í sérstöku stríði við lögregluna......og því miður hefur tekist að slasa einn.....hann er sem betur fer á batavegi......  en vonandi fer þessu skrílslátum að ljúka....FootinMouth 

Ég fór í bíó nú í vikunni og það er bara í annað sinn á 10 dögum ......ótrúlegt ..maður fer ekki í bíó  mánuðum saman og svo tvisvar með stuttu millibili við fórum einar 7 úr vinnunni að sjá Sólskinsdrenginn og é mæli með að allir sjái þessa mynd hún er alveg frábær og gefur manni nýja sýn á hvað er einhverfa....Wink 

Viðgerðin á saxafóni Þórðar fór vel tryggingarnar okkar hafa ákveðið að greiða fyrir viðgerðina og erum við afskapleg þakklát fyrir það og áttum eiginlega ekki von á því en við erum með allar okkar tryggingar hjá Sjóvá og höfum aldrei verið með tjón svo þetta er bara alveg frábært......Grin 

En gangið hægt um gleðinnar dyr en njótið helgarinnar......Halo


Alltaf er eitthvað að gerast í þessari fjölskyldu...

það er engin lognmolla í gangi hér ....frá því síðast var skrifað hefur ýmislegt verið í gangi.....Tounge  Ólöf Kristín hefur haldið áfram í prufunum í Söngvaseið og nú kemur í ljós fyrir hádegi á morgun hvort hún kemst áfram í loka prufuna sem fer fram á mánudagskvöldið....Halo það mun bara hafa sinn gang ...en frábært að hafa komist í 80 manna úrtakið...hún er ánægð með sína frammistöðu og meira er ekki hægt að gera........Wink 

Þórður varð fyrir því óláni á leiðinni heim til Danmerkur að saxafónninn hans skemmdist á leiðinni.....Frown  síðastliðin 3 ár hefur hann ferðast með hann á milli landanna og alltaf tekið hann  með í handfarangur, því hann kemst í farangurshólfin fyrir ofan sætin.....en hvað skeður hann er skikkaður til að setja hljóðfærið niður í farangursgeymslu vélarinnar...... þegar hann kemur út í flugvélina og minn maður verður  ekki glaður..... og viti menn þegar hann fær hljóðfærið úti í Danmörku þá er kassinn opinn og eitthvað skemmdur að honum sýnist ....það er svo ekki fyrr en hann á að spila á hljóðfærið tveim dögum seinna að það kemur í ljós að saxafónninn er stórskemmdur og ekki hægt að spila á hann...GetLost Nú er hann í viðgerð og þar kom í ljós að einnig kassinn er ónýtur og það þarf að kaupa nýjan.......niðurstaðan í þessu er að þetta er kostnaður upp á 60-70 þúsund sem er bara góður biti  fyrir efnalítinn námsmann í útlöndum ......Við höfum sent greinagerð til flugfélagsins en erum nú ekki of viss um að þeir líti svo á að þetta sé þeim að kenna.......en ef það verður ekki komið eitthvað á móts við strákinn í þessu máli......þá er ég nokkuð viss um að fjölskyldan forðist að fljúga með því flugfélagi..... á næstunni..Errm    Þetta er alveg ótrúlega sárt  með hljóðfærið því Þórður hefur passað uppá það eins og  sjáaldur augna sinna frá því hann fékk það........enda kostar það í dag rúmlega 400.000 þúsund......FootinMouth

Jæja nóg um það eiginmaðurinn átti afmæli í gær þann 17.janúar.....Wink  Við nenntum nú ekki að halda afmælisveislu  .....og fórum því bara í pönnukökur til pabba og mömmu .......þar hittum við því megnið af minni fjölskyldu ...... en við slógum í eina köku og vöfflur í dag og við fengum Bergþóru og Jóa, Nonna og Teddu, mömmu og pabba og Fríðu tengdamömmu í kaffi og var það ósköp notalegt.......Grin........ en við mæðgur gerðum afmælisbarnið alveg orðlaust og næstum gráti nær ....en það var vegna þess að við Ólöf gáfum honum "GÍTAR"  og byrjendabók í gítarkennslu.......Grin ....ha ..ha....ha.... hann hefur nefnilega átt sér leyndan draum að geta spilað á gítar .....og nú er boltinn hjá honum .....ég veit nú ekki hvort þetta verður upphafið af því að hann verði óþolandi í öllum veislum sem framundan eru ........en það kemur bara í ljós......Grin

Annars hefur vikan verið bara nokkuð góð....ég fór í bíó sem ég hef ekki gert lengi og sá myndina Ástralía og var hún alveg frábær við fórum nokkrar úr vinnunni saman í bíó og skemmtum okkur vel ....mæli með þessari mynd.....Smile 

 

hvert sinn sem eitthvað gott hendi þig láttu þá eitthvað gott henda einhvern annann-


Tíminn líður hratt..... eins og segir í laginu..

það hægist ekkert á tímanum ...áður en við snúum okkur við er komin miður mánuður og síðan er hann búinnTounge  Það var ósköp tómlegt eftir að allir fóru til síns heima um  síðustu helgi en nú eru hlutirnir komnir á sitt ról....skólinn, handboltinn og tónlistarskólinn eru komnir af stað og síðan bætist leiklistin við í næstu viku þannig að allt er að verða í eðlilegum farvegi hjá heimasætunniWink hún fór í prufu tvö í gær um hlutverk í Söngvaseið og að hennar sögn gekk hún vel, svo á bara eftir að sjá hvort hún verði svo heppin að komast áfram í næstu prufu eða ekki það skýrist líklega í vikunni.... í morgun fór hún svo í prufu til að reyna að komast inn í nýstofnaða söngleikjadeild hjá leiklistarskólanum Sönglist og það skýrist líka í vikunni Grin  En svona er skipulagið ef hún fær ekki hlutverið í Söngvaseið.......ef hún fær það þá þurfum við líklega að endurskoða allan pakkann hvað verður inni og hvað úti.........kemur í ljósWink 

Rólega hefur gengið að taka niður jólin hér á bæ, tréð fór í vikunni en annað hefur verið að fara hægt og rólega  og ég nenni ekki að stressa mig yfir þessu......Grin 

Ég er ein af þessum fjölmörgu sem hef komist upp á lagið að nota fésbókina ....það er gaman að nota hana en það er líklega hægt að verða svolítið upptekin af henni þannig að ég ætla að fara hóflega í hana....ég allavega ætla að gera eitthvað fleira líka .......Grin 

Það var hefðbundið pönnukökukaffi í gær og mættu um 13 manns. Það var gaman að hitta Agga, hann kom og  hann lét vel af sér, sagðist vera bara orðin góður eftir brunann sem hann varð fyrir í fyrra, hann hefur farið tvo frystitúra á togaranum og átti nú einn túr frí.

Farið vel með ykkur.


Allt að komast í réttar skorður.....

í dag héldu þeir  Þórður  og Tobías til Danmerkur ...þeir voru hálf hnípnir hér í hádeginu og langaði ekki til að fara en nú tekur alvaran við...skóli og vinna byrjar á morgun hjá Þórði Smile og Tobías fer til Frakklands í tónleikaferð með bandinu sínu, strax í fyrramálið....Smile Það hefur verið ljúft að hafa Þórð hér heima yfir jólin og skrýtin og tómleg tilfinning þegar hann fer....Frown...en nú fer sól að hækka á lofti og það verður ekki langt þar til við hittum hann aftur...allavega ekki seinna en í sumar.

Vinnan er komin af stað eftir allt veisluhaldið og það er ágætt að koma til vinnu á föstudegi til að koma sér í gírinn aftur og fá svo helgi...á morgun fer svo allt að ganga sinn vana gang....Wink Ólöf fer ekki í skólann fyrr en á þriðjudag en þá byrjar líka tónlistarskólinn aftur. Henni gekk frábærlega í jólaprófunum og var með um 9,3 í meðaleinkunn en úr stærðfræði, ensku, íslensku og dönsku var meðaleinkunn 9,5 og þetta gerði hún þrátt fyrir allt sem hún hefur haft að gera ...ég veit stundum ekki hvernig hún fer að þessu....Halo smá mont...ha ha ..... Næsta laugardag verðu annar áfangi í prufunum vegna Söngvaseiðs í Borgarleikhúsinu...það komust 400 börn í aðra umferð ...þau eiga að velja sér eitt lag af þremur fyrirfram ákveðunum lögum og syngja það fyrir dómnefn og svo er bara að sjá hvert það leiðir.....bara spennandi..Grin   

Palli og Hersís fóru vestur í dag og verða líklega komin á Ísafjörð nú um átta leitið ...veðrið og færðin er fín en eitthvað um hálku ....við heyrum líklega ekki í þeim fyrr en þau koma vestur... þau hafa verið í  tvær vikur í bænum og voru orðin fegin að fara að komast heim ....Wink

Nonni og Tedda eru svo að ljúka sínu jólafríi , Nonni fer að kenna á morgun og Tedda byrjar líklega ekki í skólanum fyrr en seinna í janúar....þau hafa sett íbúðarmálin aðeins á bið og ætla að bíða átekta aðeins lengur.

Það var heljarinnar pönnukökuveisla hjá mömmu og pabba í gær og var eins og að... þrátt fyrir allt jólahald.... hafi allir verið orðnir svangir í pönnukökur.....Grin

 

- Stundin er alltaf rétt til að gera hið rétta

þar til næst....


Þá eru hinir ljúfu jóladagar langt komnir.....

jólin hafa verið yndisleg ....rólegt og bara hin besta hvíld.... Sleeping við vorum í fyrsta sinn í fjölda ára bara fjögur að borða jólamatinn á aðfangadagskvöld....það var svolítið skrítið  Blush en seinna um kvöldið komu Nonni og Tedda og Palli og Herdís og borðuðu með okkur jólaísinn og tóku upp sína pakka ..... en það var ákveðið að hafa það þannig að pakkar frá fjölskyldunni yrðu teknir upp hér heima til að milda breytinguna Smile  .....þetta var svolítið mikil breyting fyrir Ólöfu ......en hún náði gleði sinni aftur ......Tounge   Við mættum öll systkinin, fyrir utan Þórð sem er á Sauðárkróki,  með börn og barnabarn, það er bara eitt ennþá.....Grin   til mömmu og pabba á jóladag...þar var borðað hangikjöt, lax og desert......síðan var spilað og spjallað.  Á annan í jólum komu systkini Steina saman hjá Þyri og slógum við öll saman í hlaðborð sem heppnaðist frábærlega vel....síðan var spilað á tveimur stöðum og spjallað ......vel heppnað kvöld. Smile   Síðan höfum við bara haft það rólegt höfum varla klætt okkur ...rétt drattast út í búð ... og haldið áfram að hvíla okkur..Grin ..en það er nú hægt að gera of mikið af öllu og líklega þurfum við að kippa í okkur og fara að koma sólahringnum í lag og hreyfa okkur.......Wink 

Tobías kom í gær frá Danmörku og ætlar að vara með  okkur um áramótin, hann er mjög spenntur yfir því að vera komin aftur og hlakkar til að sjá áramótin hér......það er  gaman að því, hann er svo spenntur yfir því að fá að smakka hangikjöt og fá pönnukökur hjá pabba og mömmu.... LoL hann talar enn um það hvað hefði verið frábært að sjá allar þessar pönnukökur og borða á sig gat af þeim, síðast þegar hann kom.  Strákarnir  ásamt nokkrum vinum ætla að skella sér í Bláa lónið í dag ......Smile Tóbías var með það númer 1 á óskalistanum ...Grin 

Þetta er nú í stórum dráttum hvernig jólin hafa liðið á þessum bæ ..setti nokkrar myndir inn í albúmið.  

Gleðilegt ár og megi nýtt ár verða okkur farsælt.

 

 


Mikil gleði í leikskólanum í dag...

því það var jólaball..... svona degi fylgir mikil spenna....allir koma fínir í leikskólann og það er varla hægt að bíða eftir að komast í salinn og dansa í kringum jólatréð......Tounge og svo er líka von á þeim rauða ....og sumir vilja vera í öruggum höndum þegar hann kemur.....síðan er borðaður jólamatur í hádeginu ....hangikjöt og meðlæti ....en eftir svona fjör er voða gott að  koma heim...þeir eru nefnilega erilsamir og lýjandi.....en þó er þetta alltaf gamanGrin

Ólöf hefur verið í prófum undanfarna daga og gengið bara vel að eigin sögn og þegar hún segir það þá gengur henni vel...ég held að flestar einkunnir sem hún er búin að fá vitneskju um séu yfir 9 .....Wink  ´...hún gerði hlé á þátttöku  í "Réttu leiðinni" og önnur hljóp í skarðið fyrir hana á meðan prófin eru og síðan verður síðasti  sýningardagur núna á fimmtudaginn. 

 Það hafa líka verið nemendasýningar undanfarið og hefur hún skotist þangað og fylgt eftir stuttmyndinni sem unglingarnir í Sönglist hafa verið að vinna að með Erni Árnasyni í haust.

Í dag kom svo viðtal við hana á http://www.visir.is/article/20081216/LIFID01/613650070/-1 um
Latabæ ....bara ágætis viðtal ...hún talar nú ekkert af sér  blessunin frekar en fyrridaginn.

Svo fer okkur að hlakka til að hitta Þórð, Palla og Herdís en þau koma öll um helgina.

jólakveðjur...Kissing


Laufabrauðsbakstur.....

Farið var í hinn árlega laufabrauðsbakstur nú í gær.....það var búið að finna það út að laugardagurinn yrði líklega eini dagurinn sem Allir næðu saman til að baka....... eða þannig, allir sem tiltækir væru á svæðinu ...og þó ekki, Anna var að lesa undir próf og Tedda að vinna....og svo kæmi Þórður ekki til landsins fyrr en 21.des og Palli og Herdís ekki suður fyrr en 19. des.....þannig að það vantaði  ansi margir sem vanir eru að vera og var þeirra sárt saknað Frown.....en þannig er þetta nú að allt er breytingum háð...og eftir því sem hópurinn stækkar verður erfiðara að ná öllum saman.....en þau fá nú öll sömul laufabrauð. InLove 

laufabraud13des08 006   laufabraud13des08 014  laufabraud13des08 010

Ég náði að setja upp nýjar gardínur í gamla herbergið hennar Ólafar og einnig  á baðið þannig  að þetta smá silast áfram.... og heimilið fer að verða klárt fyrir jól ........þá á ég bara eftir að gera allt hitt.... versla og svoleiðis.....Tounge 

Það er nú þetta með hefðirnar ...þær haf verið ansi sterkar og eins frá ári til árs og engu má breyta .......Ólöf er orðin hörðust með þetta og finnst hún verulega svikin því nú er komið í ljós að við verðum bara fjögur hér í mat á aðfangadagskvöld og það er eins og hún sjái fyrir sér að hún verði bara alein á jólunum ......hún mun komast yfir þetta en henni finnst þetta vera verulega óréttlátt gagnvart sé í augnablikinu.........fyrst flytja allir og svo ætla þeir lík að vera annarsstaðar á aðfangadagskvöld ...... Frown 

En bráðum koma blessuð jólin og allir fara að hlakka til.......Heart


Frúin að rifja upp bakstur og svona.....

Það gerðust þau undur og stórmerki að frúin lagðist í bakstur........ein sort......Brúnu augun.....lofaði heimasætunni að baka því ég hafði ekki orku í gærkveldi..Grin hún náttúrulega mátti ekki vera að því að hjálpa eða taka þátt því ég .....munið...hafði ekki pantað tíma....ha ha ha ...hún fór nefnilega á diskóball í kvöld í Árseli ......og fór klædd eins og diskódama í glans diskógalla ......heilum.... ég man eftir þessum tíma Wink   Hún fór í viðtalið í dag en það á ekki að sýna það fyrr en á mánudag, þriðjudag í þættinum "Ísland í dag " á stöð 2.

Það var nú svolítið fyndið að tala við hann Palla minn í kvöld, vinnan hans var að fara á jólahlaðborð að Núpi í Dýrafirði í kvöld um sjö leytið hringdi hann til mín og spurði hvort ég gæti sagt þeim leiðina þangað........þau rötuðu nefnilega ekki frá Ísafirði að Núpi....InLove þar sem ég er nú alin upp að hluta til fyrir vestan og oft á ferðinni þarna á milli fjarða bæði þegar ég var ung og eftir að ég eltist fannst mér þetta dálítið fyndið, mér fannst hann eiga að rata svona auðvelda leið ........ en svo hugsaði ég að auðvitað hafa þessi ungu krakkar ekkert verið að pæla í því hvar ákveðnir staðir eru þó þau hafi komið á staðina sem börn.....þá voru þau ekki að leggja akstursleið sérstaklega á mynnið ....en mamman gat lóðsað þau og síðan hef ég reyndar ekki heyrt frá þeim .....ég vona bara að þau hafi skilað sér og skemmti sér vel á Núpi ....þau ætla síðan að gista þar svo ég heyri á morgun hvernig þetta gekk allt saman.......Wink

Pabbi kláraði síðasta herbergið í bili svo nú er að verða aldeilis fínt hjá mér og mikið er ég glöð yfir þessu ....það er eins og ég sé í nýrri íbúð......Grin

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband