Mikil gleði í leikskólanum í dag...

því það var jólaball..... svona degi fylgir mikil spenna....allir koma fínir í leikskólann og það er varla hægt að bíða eftir að komast í salinn og dansa í kringum jólatréð......Tounge og svo er líka von á þeim rauða ....og sumir vilja vera í öruggum höndum þegar hann kemur.....síðan er borðaður jólamatur í hádeginu ....hangikjöt og meðlæti ....en eftir svona fjör er voða gott að  koma heim...þeir eru nefnilega erilsamir og lýjandi.....en þó er þetta alltaf gamanGrin

Ólöf hefur verið í prófum undanfarna daga og gengið bara vel að eigin sögn og þegar hún segir það þá gengur henni vel...ég held að flestar einkunnir sem hún er búin að fá vitneskju um séu yfir 9 .....Wink  ´...hún gerði hlé á þátttöku  í "Réttu leiðinni" og önnur hljóp í skarðið fyrir hana á meðan prófin eru og síðan verður síðasti  sýningardagur núna á fimmtudaginn. 

 Það hafa líka verið nemendasýningar undanfarið og hefur hún skotist þangað og fylgt eftir stuttmyndinni sem unglingarnir í Sönglist hafa verið að vinna að með Erni Árnasyni í haust.

Í dag kom svo viðtal við hana á http://www.visir.is/article/20081216/LIFID01/613650070/-1 um
Latabæ ....bara ágætis viðtal ...hún talar nú ekkert af sér  blessunin frekar en fyrridaginn.

Svo fer okkur að hlakka til að hitta Þórð, Palla og Herdís en þau koma öll um helgina.

jólakveðjur...Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband