Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Fréttir af fjölskyldunni.....

Þetta eru orðnir  nokkurskonar frétta pistlar af fjölskyldunni hjá mér ...eða bara dagbók......en það er nú í góðu lagi.....Þessi vika hefur liðið ansi hratt ...það var bara mánudagur og föstudagur.......Tounge en ég er líka búin að vera óskaplega löt eitthvað og lítið gert.....dreif mig til læknis á mánudag eftir að hafa farið nokkrum sinnum í blóðþrýstingsmælingu .....og viti menn ég er komin á lyf eins og líklega hálf þjóðin við blóðþrýstingi annars var bara ekkert að mér og allar mælingar í góðu lagi.....Wink ... ég er nú samt ekki sátt við að þurfa að taka lyf......Frown 

Eins og alltaf er allt á ferð og flugi í kringum Ólöfu hún hefur verið að talsetja í vikunni og spila handbolta, þeim gengur enn vel í handboltanum eru  efstar í riðlinum og allar líkur á að þær vinni deildina með sama áframhaldi.......Tounge  Selma Björns hafði samband við hana og bað hana að koma til liðs við Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu ...það eru komnar svo margar sýningar að það vantar að bæta við krökkum til að jafna álagið ....og að sjálfsögðu sagið mín já .....Haloekki málið að hoppa inní leiksýningu í þjóðleikhúsinu......Grin Daman hefur ekki látið laust né fast með að fá hárlengingar ....hún hefur verið að nota hárlengingar sem smelltar eru í hárið en hún vildi fá lengingar sem hún þyrfti ekki alltaf að vera að taka úr og setja í .....svo nú var látið til skara skríða í gær og daman er nú með sítt hár.........hún borgaði þetta sjálf ...enda er þetta dýrt ....en þetta er hár með ábyrgð í 1 1/2 ár og er alveg ótrúlega eðlilegt......enda ekta hár....Wink

Ég talaði við Þórð í vikunni og var mjög gott hljóð í honum . Hann fór og talaði við námsráðgjafa í menntaskólanum sem hann er búin að skrá sig í og var bara mjög ánægður eftir það.....hann fær svar í apríl um það hvort hann þarf að taka einhver inntökupróf þá verður það líklega enska og stærðfræði til að sjá hvar hann stendur í þeim fögum annars er hann  komin inn í skólann og byrjar í haust ......það er eins og það hafi létta yfir honum við að taka þessa ákvörðun.....Wink

Allt er gott að frétta af Palla og Herdísi þau una sér vel á Ísafirði ....tala um ótrúlega veðursæld og þó veður hafi verið vitlaus fyrir vestan oft í vetur þá nær það ekki alltaf inn Ísafjörð....allavega eru þau að læra á dreifbýlið.....Smile 

Nonni og Tedda eru bara á sínu róli ......vinna og skóli....Tounge

Veður hefur verið ágætt  undanfarna daga, hlýtt  en gengið á með rigningu eða svona vor í lofti....Lóan er komin.....en það á nú að kólna í næstu viku og í dag er spáð stormi sunnan og vestanlands, þannig að enn eru sviptingar í veðrinu......Woundering

Látum gott heita í bili kv. Sigga


Pistill dagsins....

Það er nóg að gera þessa dagana ...við stöllur fórum á Queen tónleikana og skemmtum okkur ágætlega...... Wink þó voru þeir aðeins öðruvísi en ég átti von á ......FootinMouth hefði viljað heyra meira af þekktustu lögum hljómsveitarinnar ...annars gerðu krakkarnir þetta ágætleg og Hera var frábær....Grin  Það var handboltaleikur hjá Ólöfu í gær á móti Haukum ...lið sem ég á svo erfitt með að líta réttum augum því mér finnst þær leika svo ruddalegan leik.....Frown  og mér er góðfúslega bent á að handbolti sé nú enginn ballett.....með mjúkum strokum...heldur á að taka á því Errm ........en stelpurnar okkar unnu þetta náttúrulega.....Smile 

Ég talaði við Palla í morgun og sagði hann að veðrið væri búið að vera leiðinlegt þar vestra...enn er snjóflóðahætta á norðanverðum vestfjörðum en þó mest á Bolungavík..... en þau láta vel af sér. 

Það kom skeyti frá Þórði hann segir að þeir séu búnir að slóa bara undanfarna daga og lítil veiði hafi verið vegna veðurs og hann sé bara farin að telja niður dagana að koma í land og fá smá frí. Smile

Gulli hefur ekki farið á sjó alla vikuna bæði vegna veðurs og svo hefur hluti áhafnarinnar ekki verið í standi til að fara á sjó .......Blush  Þau ætluðu vestur nú um helgina  en ég hef ekki heyrt hvort þau hafi farið því veðrið hefur verið alveg vitlaust fyrir vestan og hér fyrir sunnan líka...

Kveð að sinni ....Sigga

 


Dagurinn og vegurinn.....

hann líður áfram tíminn og full hratt finnst mér.......nú eru liðnir nokkrir dagar frá "helginni stóru"...dóttirin búin að jafna sig eftir afmælisveisluna.... sem gekk ljómandi vel ....ég hefði átta að hafa meiri áhyggjur........Grin en heilsan hefur ekki verið góð hjá dömunni,  nú þegar líða tók á vikuna.....hún er hund kvefuð og kvarta um í hálsi ....en virðist ekki vera með hita...þó fór hún  að sofa greyið nú um kl. 21.00. Við sjáum til í fyrramálið hvernig hún verður.  Þetta eru nú ekki heppilegustu veikindin þegar atvinnutækið er röddin....Frown   Hún er nú að talsetja 9 þætti af Bratts og síðan duttu inn 10 þættirnir um ameríska drekann.......hún var nú farin að halda  að Sýrland hefði gleymt sér ....en svona er þetta hlutirnir gerast allt í einu ....og það líkar minni.  Hún fór í prufuna vegna Grease og það voru um 300 manns sem fengu að spreyta sig ....en hún sagði strax að hún ætti nú lítinn séns í þetta .... Winken það var gaman að fara.

Þórður minn tilkynnti mér að hann væri búin að sækja um menntaskóla í Danmörku og ætlar hann að klára stúdentsprófið þar.....hann er búin að eiga lögheimili í Danmörku í tvö ár í sumar og þá á hann kost á að fá námsmannastyrk sem allir nemendur í framhaldsskólum  þar fá.....hann er búin að sjá að þó hann haldi áfram að læra á saxafón þá þarf hann að klára stúdentsprófið.... Smile

Pabbi og mamma höfðu samband í gær frá Kanarí og sögðu frá því að dagurinn í gær hefði verið fyrsti dagurinn sem hitinn fer upp undir 30°...það hefur verið frekar kalt undanfarna viku....annars var allt í góðum gír þar......og allir hressir...Cool 

Það er ekkert að frétta af Þórði bróður síðan fyrir helgi, en líklega fer hann að send mér línur í tölvupóstinum.........Wink

Gulli hefur ekki farið á sjó þessa viku...það hafa verið veikindi í gangi hjá skipshöfninni...en líkleg fer hann í fyrramálið.....

Maður fylgist grannt með fréttum af vestfjörðunum því það eru viðvaranir vegna snjóflóðahættu og þó krakkarnir búi á öruggum stað  .....undir snjóflóðagarðinum á Ísafirði ....þá finnast mér þetta óþægilegar fréttir.......Frown

Ég, Bryndís og Anna Birna ætlum að fara á Queen tónleika í Fífunni annað kvöld, því Doddi er í skammtímavistuninni og tækifæri fyrir þær að skreppa út....okkur hlakkar mikið til ...ég held að þetta verði flottir tónleikar....Grin

Kveð að sinni ...Sigga

 


Alltaf eitthvað að gerast .....

jæja þá eru nú nokkrir dagar liðnir síðan ég skrifaði síðast.....og margt búið að gerast......Grin  fyrst að telja er að Ólöf tók söngvakeppni Samfés með stæl....þau krakkarnir hafa síðan troðið nokkrum sinnum upp með lagið og vakið stormandi lukku......1.mars varð svo daman bikarmeistari í 4.fl.k í handbolta og átti stórleik þar....Smile Nú, hún fékk tilboð að tala inn á bíómynd og sían fær hún að fara í prufu vegna Grease sýningarinnar sem á að sýna í sumar...þannig að hún er á fljúgandi ferð.....En svo við snúum okkur að því sem frúin tók sér fyrir hendur .....þá skellti hún sér til Kanarí.......já Kanarí....það kom til þannig að það hætti einn við að fara og mér var boðið að hoppa inní ....Tounge og ég slóg til...Hafliði bróðir og hans fjölskylda fóru og svo Erna og Dómhildur frænkur mína ásamt manni Ernu og syni Dómhildar...og að sjálfsögðu fórum við sumpart til að heimsækja foreldra okkar sem alltaf eru á sama tíma á Kanarí.......InLove þau náttúrulega fá engan frið því út því við fáum ekki pönnukökur í 7 vikur hér heima þá förum við bara og borðum þær hjá þeim á Kanarí......Grin  Ferðin var fín þó hitinn hefði alveg mátt vera örlítið hærri....síðan var flugið heim nokkuð langt fyrir minn smekk......það tók 6og hálfan tíma flugið sjálft......fyrir svo utan að seinkun var um 5 tíma vegna veðurs í Evrópu....ferðalagið tók okkur því alls 16 klst. sem er heldur langt fyrir minn smekk....Cool

Þegar heim kom var nokkur þreyta í liðinu ´.....því var það nú svolítið kvíðvænlegt að dóttirin sem fyllti 16 árin nú 7 mars.... ákvað á föstudag að draga frestun á afmælisveislu til baka...... því komið var í ljós að það væri barasta engin dagur laus til að halda afmæli fyrr en einhverntíman í apríl...og það var of langt......svo frúin fór að baka ......jú daman vildi hafa kökuveislu fyrir vinina........þá var nú komið að fjöldanum...við vorum búin að heyra minnst á 20 vini.......en vinirnir sem hún varð að bjóða voru komnir í 35!!!!!Gasp.......við settumst niður og fórum í gegnum þetta með henni og viti menn ...hópurinn sem hún er að umgangast nánast daglega eða í viku hverri telur 35 Wink......svo nú varð að bretta upp ermar......en það var annað...... við áttum ekki að vera heima......afmælið var frá kl. 20 -24 og mér leist nú ekki á þetta ....Wounderingvildi hún ekki fá smá hjálp með kökurnar ...taka af borðum...setja fram og svona aðstoð ....NEI... hún taldi sig geta þetta....þá var spurningin... hvert ættum við að fara Frown.....ættum við að keyra um hverfið og fylgjast öðru hvoru með....nei niðurstaðan var að treyst á að allt gengi vel....því  þetta voru góðir krakkar,  allt tónlistar og íþróttafólk og ekki kennt við neina vitleysu.....svo við töluðum við nágrana okkar og sögðum þeim hvað til stæði og að líklega yrði einhver háfaði því það átti að spila á hljóðfæri og syngja......lagðar voru línur með að hleypa engum inn sem ekki var boðið og ef slíkt gerðist þá átti að hringja í okkur og líka að tala við nágrannana........svo við fórum og heimsóttum Gulla bróður og  Bryndísi á meðan .....hringdi ég reglulega og kannaði stöðuna Wink...við komum heim rúmlega 12 á miðnætti og þá voru krakkarnir að fara heim  og foreldrar að sækja þau .......það var nokkur hávaði þegar við komum.... tónlistin komin í hærra lag .....en viti menn það gekk allt vel....umgengnin kannski ekki alveg eins og ég hefði haft það en daman fór í að taka til og ganga frá og allir mjög glaðir með þessa veislu.

Ég fékk bréf frá Þórði bróður og er hann komin út í sjó, þeir eru á Reykjaneshrygg og voru að byrja veiðar....annars var einhver pest í gangi um borð og nokkrir skipverjar lagstir í rúmið.....sjálfsagt lítið spennandi að vera veikur til sjós...Crying

Af Palla og Herdísi er allt gott að frétta ...þau voru send heim úr vinnu vegna snjóflóðahættu í vikunni ....þannig að þau eru búin að kynnast hvernig vetur geta verið á Íslandi þennan stutta tíma sem þau hafa búið á Ísafirði....annars er Herdís í bænum þessa helgi ...kom til að halda upp á afmælið sitt með vinkonum ....en hún varð 30 ára núna 5 mars.....og ekki viðrar vel til flugs vestur því það á að athuga með flug seinni partinn.....Errm

Kveð að sinni Sigga


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband