Ég var að sniglast inni á You Tube .......
19.6.2008 | 21:36
og þar sem mér er nú málið svolítið skilt þá var ég að skoða hvað væri þar inni tengt Latabæ og það er alveg óhemja af myndböndum með lögunum úr Latabæ á öllum mögulegum og ómögulegum tungumálum. Þar á meðal er íslenska útfærslan og þar sem ég hef nú verið að fylgjast með þessum þáttum úr návígi þá á ég mér uppáhalds lag úr þáttaröðinni og mér finnst það flott . Ég set það hér ef vera skildi að þið þekktuð ekki Latabæ ha ha ha ha......... Ólöf Kristín var ekki nema 12 ára þegar hún söng þetta og boðskapurinn í laginu lýsir henni vel.
Smá montin af stelpunni ........ Nú fer að styttast í að Þórður og Danirnir komi... þeir lenda á sunnudagskvöld og síðan er búið að skipuleggja alla næstu viku, hvað eigi að sýna þeim, s.s Gullfoss og Geysi, Bláa lónið, Sögusafnið, Landnámssafnið og síðan er eitthvað fleira sem ætlunin er að gera....... ég er hrædd um að tíminn endist ekki í að sjá allt sem Þórð langar að sýna vinunum frá Danmörku .........það er gaman að fylgjast með þessari nýju ættjarðarást líkleg gerir fjarlægðin mennina mikla og fjöllin blá ....
Nú er bara eftir að vinna föstudaginn og svo er maður komin í langþráð sumarfrí....... í mánuð.
Verið góð við hvert annað, kveð að sinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alltaf eru það jafnmikil kraftaverk....
15.6.2008 | 22:45
þessu litlu nýfæddu börn Við fórum í dag og skoðuðum nýjasta meðliminn í fjölskyldunni. Anna og Steini voru að eignast lítinn dreng sem nefndur hefur verið Mattías Máni. Ég mundi bara ekki eftir því að nýfædd börn væru svona lítil, allavega voru mín börn ekki svona lítil, þó telst 14 marka barn ekki lítið barn, en hann var óskaplega fallegur og ekki laust við að kæmi smáááá......... ömmutilfinning í mig og að maður táraðist yfir þessu litla kraftaverki en eins og Jóhanna Sig sagði "minn tími mun koma" . Kannski fæ ég að verða amma einhvern tímann, hver veit.........
Í gær vorum við svo í útskriftarveislu hjá Lilý, hún var að útskrifast úr HÍ sem bókmenntafræðingur. Hún skrapp hingað heim til að útskrifast, frá London en þar hefur hún búið, ásamt kærastanum sínum honum Arnari, í eitt ár og ætlar að vera þar eitthvað áfram.
Annars var helgin hin rólegasta, mikið sofið og bara hvílst..... setti jú í nokkrar þvottavélar og gekk frá ýmsum dóti sem farið var að safnast upp hér og þar, horfðum á fótbolta og handbolta í TV .. annars lítið meira að segja um það.
Farið varlega, góða nótt
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð helgi og rúmlega það...
13.6.2008 | 22:07
var hjá okkur hjónum og heimasætunni um síðustu helgi....þá lögðum við land undir fót eða dekk og það í orðsins fyllstu merkingu því við ókum um 1400 km á þessum 5 dögum sem við tókum okkur í frí....´ Við byrjuðum á því að fara norður á Akureyri og gistum þar því okkur var boðið í fermingarveislu alla leið norður í Laxárvirkjun í Aðaldal á laugardeginum 7.júní.... Þar áttum við frábæran dag í faðmi fjölskyldu og vina.......... en þegar halda átti heim á leið (á Akureyri) þá var það dóttirin ásamt frænkunum sem suðaði það út að fá að gista fram á sunnudaginn.....og auðvitað var það þannig að við létum undan og ákváðum að sækja hana áður en lagt yrði af stað vestur á í Tálknafjörð daginn eftir... ekki alveg í leiðinni...
Við héldum til Tálknafjarðar á sunnudeginum og vorum komin vestur um kl. 22.00.. við fengum frábært veður á leiðinni... stoppuðum í Bjarkarlundi og fengum okkur að borða...þar eru nú staðarhaldarar foreldrar bekkjarbróður Ólafar og koma það skemmtilega á óvart... þar var svo horft á fyrrihálfleikinn í landsleik Íslendinga og Makedóníu áður en við héldum af stað aftur. Ferðinni var heitið vestur í tilefni af því að pabbi varð 75 ára 10 júní og ætluðum við systkinin að vera í Stóra Laugardal þessa helgi.... en ekki gátum við verið öll á sama tíma ... en við hittumst flest.... það var samt eiginlega að einn kom þá annar fór..... boðað var til tveggja grillveisla og tókust þær frábærlega báðar tvær.....
Á afmælisdaginn hans pabba áttum við hjónin einnig brúðkaupsafmæli...... og viti menn við erum búin að vera gift í 30 ár ...mér skilst að það sé perlubrúðkaup.... ég trúi þessari tölu varla því mér finnst þetta vara ansi mörg ár og ég svo ung ....en svo horfir maður á börnin sín og jú.... Nonni er að verða þrítugur!!!!....
Við eyddum brúðkaupsafmælinu í að fara í ferð með Hafliða, Þórði bróður og nokkrum af börnunum okkar yfir á Suðureyri við Tálknafjörð.. Suðureyrir er á móti Stóra Laugardal hinum megin við fjörðinn....ég og Þórður höfðum aldrei komið þangað og var gaman að skoða rústirnar af hvalstöðinni sem þarna var síðari hluta nítjándu aldar og byrjun þeirrar tuttugustu... Þegar þessari fróðleiksferð var lokið fóru allir út í Laugardal en við hjónin ákváðum að fara í sund á Patró....mjög rómó.... en það er engin sturta í Stóra Laugardal og því hefur fólk farið í laugina á Tálknafirði ...en nú var verið að lagfæra hana og hún því lokuð og því var ferðinni heitið á Patró í sund......það var gaman að koma í nýju laugina á Patró en hún er staðsett á skrítnum stað í miðjum bænum ....uppi á annarri hæð.... það er allavega gott útsýni yfir fjörðinn þaðan.. um kvöldið var svo slegið til grillveislu og komu þangað tvö systkini pabba og makar og systir mömmu og hennar maður ásamt einum af þeirra sonum og tengdadóttir... það er ekki að sökum að spyrja þetta varð hin besta veisla og held ég að allir hafi skemmt sér vel...
Við komum svo suður á miðvikudagskvöldið...tókum Baldur yfir Breiðafjörð.....það er alltaf gaman að sigla yfir Breiðafjörð..sérstaklega í góðu veðri ...við virðumst alltaf fá gott veður en allavega Breiðafjarðareyjarnar eru alltaf fallegar...
Restin af vikunni hefur svo verið nokkuð annasöm.. það er verið að gera klárt fyrir að geta farið í sumarfrí.. en við Steini ætlum að fara í frí 23.júní.... Svo fer að styttast í að Þórður komi heim frá Danmörku með sína vini ..þannig að það er nóg að gera framundan..
Set nokkrar myndir inn úr ferðinni....
kveðja út í kvöldið og nóttina .....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
svona er þetta nú maður er alltaf í tímaþröng ....eða gefur sér ekki tíma... ætli það sé ekki frekar þannig En ég lét verða að því að fara og heimsækja hann frænda minn (á ská) upp á spítala.. strákurinn er búin að var rúmliggjandi í 3 vikur eftir brunaslys sem hann varð fyrir á Sauðárkróki þegar lítill brúsi með 120 oktana bensíni fyrir fjarstýrða bíla sprakk í höndunum á honum það varð sjálfsíkveikja og kveikti það í fötunum hans svo hann hlaut mikið brunasár á fótum og höndum.
Ég hef ekki hitt hann í nokkur ár og ætlaði varla að þekkja strákinn, en það var ánægjulegt að hitta hann... ég talaði nú aðalega til að byrja með en það breyttist fljótt. Hann á að fara í aðra aðgerð á morgun til að gæða aftur skinn á fótlegginn og á ekki von á að sleppa út af spítalanum næstu 3 vikurnar...þar að segja ef allt gengur að óskum.. Hann er ekki farin að stíga í fæturna enn og fær ekki að gera það næstu vikuna. En það var nokkuð bjart yfir honum þrátt fyrir að hann segðist vera með stöðuga verki í fótunum.... en ég ætla að skjótast til hans fljótlega aftur og óska honum góðs bata þangað til.
Ég hef sett upp spakmæli á hverjum degi í vinnunni undanfarinn einn og hálfan mánuð. Þau hafa skapað umræður og pælingar í kaffitímanum á morgnanna og vakið fólk til umhugsunar. Ég skráði mig á velgengni.is og þeir senda þessi spagmæli til áskrifenda á hverjum virkum degi og ég mæli með þessu. Það er mikil lífssýn í þessum spakmælum sem koma og ég trúi því að þau leiði mann til betra lífs og vekja upp spurningar um hver lífsviðhorf manns eru
Það var sveitaferð í leikskólanum í dag..farið að Grjóteyri í Kjós.. alltaf er gott að koma þangað. Ég fór ekki að þessu sinni því önnur verkefni þurftu að hafa forgang. Það fór 120 manna hópur frá leikskólanum og er það nú orðið þannig að foreldrar og gestir eru að nálgast sömu tölu og börnin eru.. en það gekk frábærlega í ferðinni og það hafa allir gaman að því að koma í sveitina og sjá ungviðið, lömbin, folöldin, kálfana, ungana, kettlingana og hvolpana og að sjálf sögðu foreldra ungviðisins....Fábær staður og gott að koma á og alltaf góðar móttökur..
Jæja nú segi ég eins og segir í spakmælunum góðu, hrósaðu einhverjum í dag.
Góða nótt
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
This is my live....ótrúlega flott...þau voru laaaaang....flottust..
22.5.2008 | 22:22
til hamingju Regína og Friðrik....þið tókuð þetta með glæsibrag..... Þau voru svo geislandi, falleg og óaðfinnanleg á sviðinu og söngurinn fullkomin.....er hægt að ætlast til meira..enn og aftur til hamingju með þetta. Hér vorum við mæðgur og vinkona dótturinnar að fylgjast með og höfðum allar okkar skoðun á frammistöðu keppenda...okkur fannst Svíþjóð, úkraína, Mekadónia, Danmörk og Portúgal flott lög og þau komust flest áfram og bara frábært að öll norðurlöndin skuli vera áfram í keppninni. Þegar lesið var upp hverjir kæmust áfram þá ætlaði bara allt af göflunum að ganga þegar nafn Íslands var lesið upp, ef þakið hefði getað lyfst þá hefði það gerst ....og vorum við bara þrjár... ég held að við höfum ekki gefið Man.Unitet aðdáendum neitt eftir í fögnuði. Nú verður bara frábært að fylgjast með á laugardaginn. ÁFRAM ÍSLAND.
Við vorum með Eurovision ball í leikskólanum í dag og var þemað bleikt.. og það var sko dansað að hjartans list við tónlist Eurobandsins og gömlu eurovision lögin....bara gaman Ekki er það leiðinlegt heldur að Regína er uppalin í Árbænum og þegar maður býr þar þá hlýtur maður að eiga svolítið i henni..........ha ha svo er Friðrik frá Dalvík... næsti bæ við Ólafsfjörð..ha ha ekki leiðinlegt.
Og svo ÁFRAM ÍSLAND.... Regína og Friðrik þið eruð langflottust...........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Halló......
15.5.2008 | 23:14
bara aðeins að láta vita af mér ...ég sé að það eru einhverjir að kíkja inn ....svo það er best ég láti aðeins vita af mér. Þessi vika hefur einhvernvegin liðið hægt þó að hún sé ekki nema 4 vinnudagar.... ég held að það hafi verið þriðjudeginum að kenna .....alltaf að kenna öðrum um...he.he.... hann fór eitthvað vitlaust í mig og það var allt á afturfótunum þann daginn og það hefur síðan gengið á ýmsu í vinnunni þannig að maður hefur verið alveg úrvinda í lok hvers dags. ..... ég sofnaði þegar ég kom heim í dag og svaf af mér tiltekt í lóðinni og hafði mig ekki af stað til að heilsa upp á hana Öggu vinkonum mína sem átti afmæli í dag En við ælum að hittast í góðu tómi síðar.....
En ég hef ekki sagt ykkur frá því að bíllinn minn fíni Ford Mondeoin... gaf upp öndina fyrir tveim vikum það kom í ljós að sjálfskiptingin var ónýt og það er bara hálfrar miljóna krónu dæmi ... ég er búin að keyra hann um 3500-4000 km á þessum 7 mánuðum sem ég hef átt hann og hann er ekki nema 5 ára gamall... en við eigum eftir að sjá hvað hægt verður að gera og hvað umboðið vill gera fyrir okkur.......... ég er ekki farin að örvænta enn ...... en við það að vera bíllaus .... er ég farin að ganga í vinnuna og viti menn foreldrar í leikskólanum hafa spurt mig að því hvort ég sé í heilsu átaki...... því þeir sjá mig koma gangandi í vinnuna á morgnanna .... en þeir sem þekkja mig vita að ég er alltaf á bíl... ég meira segja hugsa og tek ákvarðanir út frá því að ég sé á bíl......... mér finnst ég ótrúlega lengi að aðlagast því að ég sé ekki á bíl.... því ég veit ekki fyrr en ég hef gert ráðstafanir og gert ráð fyrir að bíllinn standi úti.
Það er gaman að sjá hvað gróðurinn er að taka vel við sér og sumarið að skella á ... eitt verð ég þó að segja að mér finnst ótrúlega mikið að býflugum þessum.. gulu stóru röndóttu...það er ógrinni af þeim fljúgandi fyrir utan glugga hjá mér á þriðju hæð... og náttúrlega villast þær inn .. ég held að ég hafi veitt einar 7 í gær og sett út ... ég get ekki drepið þær heldur læt þær út
Þórður sagði mér í kvöld að brunasárin væru farin að gróa en hann hafi ekki getað spilað því það tæki í sárin í lófanum einnig fór að blæða úr handleggnum því umbúðirnar eru á einhverju flakki en að öðru leiti lét hann vel af sér. Þau keyptu sér borð og 4 stóla og voru mikið glöð með þau kaup...
Við sjáum lítið af hinum ástfangna Palla en fréttum að því að hann hafi verið í Freysnesi að setja upp dælur nú í vikunni.
Nonni er á fullu að ljúka kennslu nú í maí og síðan eru allir flokkarnir sem hann er að þjálfa komnir í einhver mót svo við sjáum lítið af honum ...hann er að þjálfa 7 flokk. 5 flokk . og nú á dögunum gerðist hann aðstoðarmaður hjá 2. flokk þannig að hann mun hafa nóg að gera og nánast búa á Fylkisvellinum í sumar.
Síðan er það Ólöf Kristín hún er að byrja í prófum... það er komin sumarpása í öllu sem hún hefur verið að fást við í vetur... Tónskólanum, handboltanum, þjóðleikhúsinu .. en nú fer hún aðeins örar í talsetninguna búin að talsetja 4 Latabæi og síðan áframhald á ameríska drekanum. Hún verður líkleg á einhverjum rólegum nótum í sumar..veitir víst ekki af eftir erilsaman vetur.
Úr því ég hef farið yfir stöðu allra barnanna þá má ég víst ekki gleyma eiginmanninum....hann hefur tekið sig til við að synda annan hvern dag og er byrjaður að fara eftir æfingaprógrammi sem Nonni útbjó fyrir hann ....það lofar góðu.... og bara svona í framhjáhlaupi þá er ég farin að hjóla á þrekhjóli hér heima ..... mér finnst það nú ekki sérlega skemmtilegt en það hefur góð áhrif....
En þarna er það þá komið ég hafði ekkert að segja þegar ég settist niður en þetta nálgast nú munnræpu.....
Farið vel með ykkur og góða nót
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fréttir sem draga mann bara niður... en samt þarf maður alltaf....
12.5.2008 | 22:53
að athuga hvað er í fréttum ...þegar ég opnaði tölvuna í morgun og las á mbl.is frétt að miklum jarðskjálfta í Kína fékk ég sting í hjartað..... vesalings fólkið á þessu svæði... í Burma hrinur fólk niður eftir náttúruhamfarir, vegna aðgerðarleysis eigin fólks (yfirvalda ) sem er tilbúið að fórna sinni eigin þjóð vegna einhvers sem engin skilur.. svo hingað heim ökumenn teknir undir áhrifum fíkniefna út um allt land..... hvað er að gerast hér .... ég fer að halda að umferðin á Íslandi sé eins og rússnesk rúlletta..... maður telur sig vera nokkuð góðan og öruggann bílstjóra en....þú getur ekki treyst neinum í umferðinni kringum þig.... þetta finnst mér vera ógnvænlegt. Ég hef ósjálfrátt farið að hugsa... þegar ég heyri af umferðarslysum... hvar ætli strákarnir mínir séu á ferð núna?
Ég fann síðu sem er með yfirlit yfir alla stæri jarðskjálfta í heiminum alla yfir 4 á ricter, ég hef farið nokkrum sinnum inn á þessa síðu og hún er fróðleg :
http://tsunami.geo.ed.ac.uk/local-bin/quakes/mapscript/home.pl
En nóg um svona depurð. Þessi helgi hefur verið alveg eins og hún á að vera... alger rólegheit og ég hef ekki gert nokkurn skapaðan hlut, varla klætt mig ...jú sett í þvottavél og gripið í ryksugu en þá er það upptalið og mér líður bara nokkuð vel með þetta. Aðrir á heimilinu hafa haft aðeins meira fyrir stafni ...s.s Steini fór í sund og Ólöf "hæ bæ" hefur sinnt vinum.. Vinkona hennar var hjá okkur í þrjár nætur því foreldrar hennar voru úti. Jú ekki má gleyma að Bergþóra og Jói buðu okkur í hádegismat í dag og sátum við þar fram eftir degi, það er langt síðan ég hef verið boðin í hádegismat takk fyrir okkur.
Í síðustu færslu sagði ég ykkur frá brunaslysi sem Agnar lendir í en það er eins og aldrei sé ein báran stök ...því Þórður minn hringdi heim á laugardaginn og lét mig vita af því að hann væri á bráðavaktinni í Kaupmannahöfn og þyrfti að vita hvort hann hefði verið sprautaður fyrir stífkrampa??? ég hváði .... og hann sagðist hafa brennt sig .... ótrúleg... og hvernig þá..jú hann hafði brennt sig við að fara með höndina inn i bakaraofn ... hann var að ná í brauðbollu sem hafði dottið einhvernvegin uppfyrir í ofninum!!! og bæði brennt sig í lófa og rekist með framhandlegg utan í og við þetta hlotið annarstigs bruna.......ég segi bara gott að ekki fór verr....... og það er alveg áreiðanlegt að slysin gera ekki boð á undan sér....
Farið varlega því það er víst aldrei of varlega farið í henni veröld....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú held ég að borgarstjóri sé að keyra út í skurð....
8.5.2008 | 20:52
það er með ólíkindum hvernig allt er að snúast í henni vík..... ég veit ekki betur en að stefna borgarinnar hafi verið að greiða ekki fasta yfirvinnu.... öll vinna innan fastra launa, þó svo unnin sé yfirvinna eða um helgar, þetta átti alla vega að vera fyrir yfirmenn hjá leikskólum..... en þar starfa jú bara konur..... en mér finnst þessi framkvæmd á ráðningu Jakobs með ólíkindum...og alveg örugglega hefði hún ekki verið liðin ef einhver annar í borgarkerfinu hefði leyft sér að ráða í yfirmannsstöðu/verkefnastjórastöðu án auglýsingar... sem sagt ég held að borgarstjórinn sé komin í skurðinn meðfram beina veginum.
Við vorum að koma af uppskeruhátíð hjá Ólöfu og ekki kom það að óvart að hún yrði valin leikmaður ársins í b liðum eftir fábæra frammistöðu í vetur. Við vorum lík á foreldrafundi í "Sönglist " og stelpan fær bara frábær meðmæli þaðan, það eru nú svolítið stoltir foreldrar sem elta stelpuna sína í þessu öllu saman.
Það var sárt að heyra að Agnar fóstursonur Þórðar bróður hefði brennst svona illa á sunnudagskvöldið var.. hann var fluttur með sjúkraflugi suður og er á brunadeildinni á landspítalanum... samkvæmt því sem Þórður segir þá hefði þetta getað farið ver en hann er illa brunnin um ökkla og upp á leggina og síðan brunasár á höndum og ofar á fótleggjum. Við sendum honum góðar kveðjur og vonum að honum fari að líða betur og hann nái sér fljótt. En þetta kennir manni það að slysin gera ekki boð á undan sér ekki.
Ég heyrði í Þórði mínum áðan og hann er komin í netsamband og þau Isabell að koma sér fyrir í nýju íbúðinni.....sumarið er komið í Köben og búið að vera frábært veður í 5 daga og spáir 24 stiga hita á morgunn......
Þegar ég lít hér út um gluggann.... sé ég þessi líka flykki fljúga fyrir utan gluggann það byrgir næstu fyrir sólina....þessar líka rista hunangsflugur á flugi....uppi á 3.hæð.... ekki vinir mínir en þær eru nú óttalega meinlausar greyin.. hey hún er komin inn og hávaðin í henni....ótrúlegt!!
Við erum með gest hér hjá okkur nú í nokkra daga það er vinkona Ólafar hún Rósa sem fær að vera hér á meðan foreldrarnir skruppu til útlanda...það fer nú ekki mikið fyrir henni....bara gaman að fá hana til okkar. ..
Verið góð hvert við annað sæl að sinni.....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er þetta með greindina......
6.5.2008 | 23:33
ég er ekki alveg sátt við svona fullyrðingar... að slá því fram að börn séu greindari ef þau hafa verið eingöngu á brjósti fyrstu mánuðina.... ég held nú að brjóstamjólkin skeri nú ekki úr um greindina.. en líkleg hefur hún áhrif á heilastarfsemina sökum næringargildis mjólkurinnar öðru fremur sem síðan veldur meiri þroska og skerpir greind..... þó svo ég hafi nú ekki mikið vit á þessu. En eitt veit ég að mér gekk ómögulega að mjólka fyrir mín börn og fékk skír skilaboð á þeim tíma hvað ég væri misheppnuð að "nenna ekki að vinna að því að halda mjólkinni" sem var alsekki rétt því ég bara mjólkaði ekki og gaf því mínum börnum snemma þurrmjólk... þau hafa bara dafnað ágætlega og komist ágætlega til manns og teljast bara nokkuð greind.... Ólöf sagði þegar hún sá þetta ... hvað hefði orðið með mig ef ég hefði verið á brjósti... gaman að þessu við erum alltaf að fá skilaboð um hinn eina sanna rétta veg í gegnum lífið en hann er svo vandrataður og því okkur hættir svo við að lenda í skurðunum báðu megin við þennan eina sanna veg.
notum skinsemina þá farnast okkur vel.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er sorglegt að heyra svona fréttir.....
5.5.2008 | 20:04
eins og þjóðin hefur fengið yfir sig um helgina þar sem prestur er sakaður um kynferðisafbrot gagnvart ungum stúlkum... ég hef þann hátt á að reyna að horfa á hlutina út frá þeirri hlið að engin er sekur fyrr en sekt er sönnuð.. en það er ljóst að alvegsama hvernig þetta mál fer ,sekt eða sakleysi, þá er það mannorðsmorð fyrir þann sem lendir í þessari stöðu, ég tala nú ekki um þegar maður í þessari stöðu á í hlut. Vonandi er þetta allt saman bara misskilningu eins og hann heldur fram.
En nóg með þetta þá er loksins farið að talsetja nýjustu Latabæjarþættina og var byrjað í dag. Ólöf talsetti einn þátt í dag og fer aftur á morgun... bara gaman að því. Söngurinn verður líklega tekinn upp hjá Mána í Latabæjarstúdíóinu eins og síðast og það er bara gott mál þeim gekk svo vel að vinna saman síðast ... Nú er komið hlé á Skilaboðaskjóðunni fram á haust og handboltinn búin og Sönglist búin svo nú er Tónlistarskólinn og skólinn bara eftir á þessu vori svo mín kona getur farið að finna sé eitthvað nýtt að fást við ...... hún getur ekki verið verkefnalaus þessi elska.... ég veit ekki hvaðan hún hefur þessa orku....örugglega ekki frá okkur foreldrunum ....allavega ekki eins og við erum í dag......
Ég heyrði í Þórði í gær og hann er bara ánægður með nýja húsnæðið....þau Isabel fluttu inn á föstudaginn og eru svona að skoða í kringum sig og koma sér fyrir... hann talar um að umhverfið sé fallegt stutt í útivistarsvæði, stutt í strætó og verslanir og þau eru nær miðbænum...Isabel er komin við hliðina á Háskólanum og Þórður getur hjólað í sinn skóla... Gatan heitir Fogetegorden 3 (íslenskað fann ekki danskt o) og sú gata liggur á móts við gatnamót Jadegate og Tagensveij líklega skrifa ég þetta ekki rétt.... annars segist sonurinn vera að tapa kílóum hafi lést um 18 kíló síðan hann flutti út....ég held hann megi ekki léttast mikið meira hann er svo hár..
Krakkarnir komu í mat í gærkveldi en Tedda var að vinna á kvöldvakt svo hún kom nú ekki að þessu sinni..... Við dustuðum rykið af grillinu og athuguðum hvort við kynnum þetta ennþá...ég meina að grilla....það hefur ekki verið grillað síðan síðastliðið sumar og viti menn við kunnum þetta enn...grilluðum dýrindis lambalæri..
Þá segjum við þetta gott í bili og njótið kvöldsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)