Þessi vika hefur liðið hratt.....

og næstum komin ný helgi..... við kíktum í kaffi til Þyriar og Kalla í gærkveldi ...Þyri átti afmæli og voru þarna saman komnir ættingjar og vinir á nýja heimilinu þeirra sem óðum er að taka á sig endanlega mynd .....búin að vera ærinn vinna og mörg handtökin þar......mikið var rætt um ömmubörn og nánast allir nema við Þyri......Pouty   komnir með ömmu og afa börn og kepptust við að segja frá sínum .......Wink .... en við Þyri eigum þetta skemmtilega bara eftir, ég óska bara öllum til hamingju með barnabörnin...InLove 

Það er allt gott að frétta af Þórði en hann er ekki enn  búin að fá  nýtt herbergi en hefur mánuðinn til stefnu.   Hann er nú að æfa með leikhóp sem tekur þátt í leiklistarhátíð  22-24 ágúst...hátíðin ber nafniðVILDSKUD Þórður útsetur tónlist og spilar á Saxafón í leikverki sem heitir Freja....þessi sýning fjallar um  útigangsfólk í Kaupmannahöfn...Wink það er bara spennandi að takast á við nýja hluti og leiðir hugann frá leiðindum sem alltaf fylgja skilnaði. ...

Við ætlum að leggja land  undir fót á morgun ....eða dekk.....og skella okkur norður í Eyjafjörð.....við þrjú systkinin ætlum að elta foreldrana okkar í sumarhús að Þverá.....og vera þar yfir helgina.....aumingja þau.... losna ekki einu sinni við liði sem komið er á fimmtugs og sextugs aldurinn.....Grin .... stendur ekki einhversstaðar að börnin verða alltaf börnin mans hversu gömul sem þau verða ...... við trúum því alla vega ...Halo ... en við höfum nú sannfrétt að þeim finnist þetta ekki leiðinlegt ....  Við ætlum að reyna að komast  af stað með fyrra fallinu.... en það verður líklega ekki fyrr en um miðjan dag að við förum ....þurfum að bíða eftir litla bróður og leifa honum að sitja í á leið norður... því hann greyið þarf að vinna og Guðríður ætlar að leggja af stað með hjólhýsið snemma á morgun......Kissing

Heilræði dagsins:  Lofaðu ekki meiru en þú getur staðið við........


Það tóku sig upp gamlar minningar ......

við að fara í rigningunni á tónleika í Fjölskyldu - og húsdýragarðinum í kvöld..Tounge minningar um ófáar ferðir í Galtalæk um verslunarmannahelgina þar sem allt rigndi niður en allir .....aðallega börnin ....voru sælir og glaðir í sinni og tóku þátt í hátíðarhöldum af hjartans list....það voru aðallega við þessi eldri....  Wink  ..sem vorum ekki alveg eins hress með bleytuna og allt það vesen sem fylgdi rigningu og börnum .....en þessar ferðir lifa í minningu barnanna og það fyrnist yfir leiðinlega hlutann af því að fara í útilegu....Grin 

En það var gaman á tónleikunum í kvöld..... við mæðgur fórum saman  og skemmtum okkur mjög vel....Smile .. þrátt fyrir að ég kæmi heim eins og hundur af sundi....þá var þetta gaman..... Stuðmenn hafa engu gleymt og ekki var nú síðra að heyra í Nýdönsk... og fögnuðurinn og gleðin var mikill hjá yngri kynslóðinni þegar Ingó og Veðurguðirnir stigu á pall......þá komu fjörug lög sem allir kunnu ásamt náttúrulega "Bahama eyjar" sem allir á svæðinu kunnu frá 0 og uppúr.....Grin   takk fyrir þessa ágætu skemmtun...

  Annars hefur þessi helgi verið róleg ...kannski fullróleg.. en við höfum hvílt okkur vellllll.....Sleeping  en þó skruppum við í gærkveldi upp í Skorradal til Bergþóru og Jóa og þar var grillað og krakkarnir fóru í heita pottinn.. það var margt um manninn hjá þeim því Steini og Anna voru með Júlíu og Mattías Mána og síðan var frændi  Önnu og hans kona ásamt litla drengnum þeirra......við komum svo til baka um kl 23 í gærkveldi.

Í heita pottinum í Skorradal

En eins og Stuðmenn sögðu í lok dagskrár í kvöld ...no. 1. "gerið ekkert sem þið sjáið eftir seinna" og no . 2 "sjáið aldrei eftir því sem þið gerið" Tounge ekki alveg viss með þessa lífsspeki....

 


Sól .sól..skín á mig....

þessi síðustu dagar hafa verið yndislegir...veðrið frábært ..og lífið hefur farið í annan gír..Cool  það hefur hægst á öllu og allir glaðir og brosandi....Grin Ég hef staðið vaktina í eldhúsinu í vinnunni síðustu tvær vikurnar og er að ná bara nokkuð góðum tökum á þessu og það passar ..matráðurinn hún Árný kemur aftur í vinnu eftir helgina....Tounge  Annars hefur verið afskaplega rólegt og ljúft í leikskólanum undanfarna daga börnin sem hafa mætt hafa fengið nánast til einkaþjónustu ....Smile það hafa nefnilega ekki verið eins mörg börn í leikskólanum eins og ráð var fyrir gert...við höfum verið á bilinu 10-16 börn og 7-10 starfsmenn ... í hópi starfsmannanna eru  3 frábærir krakkar úr vinnuskóla Reykjavíkur, síðan hefur fólk verið að skila sér úr fríum.. og aðrir að hætta eða að fara í frí... ég er enn samt á því það eigi að loka leikskólunum í 1 mánuð á sumri....

Það er nú það helsta að frétta af afkomendunum að Nonni og Tedda ætla að bregða sér til eyja nú um verslunarmannahelgina..hafa fengið inni í húsi í bænum hjá einum vina sinna, annars snýst lífið hjá Teddu núna um að klára BA ritgerðina sína og Nonni býr enn á Fylkisvelli Smile sem sagt er alltaf að þjálfa.... Palli og Herdís fóru alla leið á Borgarfjörð eystri til að hlusta á tónleika um síðustu helgi og fóru víst hringinn á 3 dögum...annars eru þau bara að vinna.  Leiðir Þórðar og Isabell eru að skilja og er hann nú að leita sér að húsnæði en Isabell ætlar að halda til Kúbu í september.. Þórður ætlar sér að halda áfram í tónlistarskólanum og sjá svo hvað setur ..... Woundering hann var að byrja  í samstarfi með leikhópi sem er að setja upp sýningu í Köben og mun hann útfæra tónlistina....bara gaman að takast á við eitthvað nýtt.....Wink  Síðan er það Ólöf hún er byrjuð að taka upp tónlistina í nýju þáttaröðinni af Latabæ... tók upp 4 lög á föstudag og mánudag.... Máni hefur ekki séð hana í næstum 3 ár og er hún nú orðin stærri en hann...Grin  Ólöfu leið mjög vel að koma aftur í stúdíóið til Mána...þau virðast ná vel saman.

 Við munum vera á rólegum nótum um helgina fara kannski í bíltúra útfyrir bæinn.. jafnvel að kíkja í Húsdýragarðinn og sjá tónleikana með Stuðmönnum og Ný dönsk..annars bara rólegt.. okkur finnst það bara ágætt...Halo

Við ráðum sjálf með hvaða hugarfari við förum út í daginn...Grin


Þá er þessi ágæta helgi liðin......

Við mæðgur skelltum okkur í bíó á laugardaginn og sáum "Mamma mía" ..og hún var alveg frábært...þessa mynd ætla ég að eiga þegar hún kemur út á DVD ....pottþétt....ég átti fullt í fangi með að syngja ekki hástöfum með og missa mig ekki í dans...Grin  mæli eindregið með henni.

En ég var  vakin eldsnemma ..... eða þannig í morgun kl. 10.00Tounge og spurð að því hvort ég væri ekki til í að koma með út í Viðey!!!!!  í fyrstu leist mér nú ekki neitt sérstaklega á það og það átti að taka bátinn kl. 11.15..... en ég var vöknuð og svo hugsaði ég ...af hverju ekki... hvað annað væri ég að gera....svo ég sló til og rauk í að hafa mig til og ég var mætt á réttum tíma inní Sundahöfn.. Veðrið var náttúrulega alveg dásamlegt og ekki hægt að hugsa sér það betra .... við tókum okkur svo göngu út í þorpið í austureyjunni og gengum svo eftir gönguslóð sunnan megin til baka að Viðeyjarstofu... þar sem við fengum okkur smá að borða, við héldum svo til baka með ferjunni kl. 14.30, þá var farið að kula svolítið.... ég set hér inn nokkrar myndir frá deginum.

Grípum tækifærin þegar þau gefastSmile


Nokkuð til í þessu......

ég fæ á hverjum degi spakmæli send til mín í vinnuna gegnum netpóstinn... það er velgengni.is sem sendir þessi orð.... fyrir stuttu komu þessi orð sem gripu mig.... 

"- Allt of margt fólk eyðir peningunum sem það hefur ekki ennþá aflað, til að kaupa hluti sem það langar ekki í, til að ganga í augun á fólki sem því líkar ekki við-"

.. hvað ætli sé mikill sannleikur í þessum orðum ...Frown ætli þetta sé íslenska þjóðin í hnotskurn ????

Lítum okkur nær hamingjan býr í okkur sjálfum....Smile


Þá er lífið komið í sinn rétta farveg aftur.....

því ég og eiginmaðurinn fórum aftur af stað í vinnuna í dag... og viti menn það var bara svo gott að koma aftur til starfa....Wink  það er annars ansi fátt hjá okkur...örfá börn en afskaplega notalegt samt.... það er samt mín skoðun að leikskólinn eigi að loka í heilan mánuð yfir sumartímann.....að sumarleyfin séu þannig skipulögð að það sé fyrra og seinna tímabil... annað hvert ár og þá vita allir að hverju þeir ganga langt fram í tímann... Smile með þessu fyrirkomulagi þá verða ákveðin tímamót, allir eru að fara saman í frí og koma svo óþreyttir og hressir til baka að fríi loknu... félagar eru saman og hægt er að sinna viðhaldsvinnu í lokuninni... ég hef prufað allar útfærslur af sumarleyfislokun/opnun og það sem ég tel farsælast er að loka í 4 vikur.....Smile

Ég er að fá einkenni af  "öryggiskerfisfælni" ...... það kom þannig í ljós að þegar ég fékk afhenta lyklana af sumarhúsinu á Akureyri með þeim orðum að það væri öryggiskerfi í húsinu sem ég þyrfti að aftengja þegar ég kæmi þangað...... vitið þið ....ég fékk hnút í magann og vanlíðan og ég varð eiginlega viss um að ég gæti ekki gert þetta ....ég fékk kvíðakast..Errm  og ótrúlegt en satt þegar ég opnaði húsið og sló inn tölurnar á kerfinu .....þá gerði ég það vitlaust.... og kerfið argaði á mig...Crying og klukkan var um miðnætti....mikið skelfing varð ég miður mín....mér tókst svo að slökkva á kerfinu og ég setti það ekki á aftur á meðan ég dvaldi þarna......ég hafði slegið inn tölurnar í leikskólanum hjá mér..Halo  en það var svo skrítið að nú í lok dags þurfti ég að slá inn tölurnar í leikskólanum og mér leið bara verulega illa yfir því, var viss um að nú færi allt að öskra......ég verð Líklega að gera eitthvað í þessu Smile

Við Ólöf skruppum upp í Borarfjörð til að kíkja á útilegufólkið í Fossatúni.. það voru nokkrir úr fjölskyldunni í útilegu... við lögðum af stað  um kl. 12.00 en þegar við komum í Fossatún þá var farið að hvessa og það var spáð rigningu svo við misstum af hluta að fólkinu því það var bara búið að pakka  sama og farið...Pouty en Hafliði og Gugga voru þarna enn í fína hjólhýsinu sínu svo við settumst upp hjá þeim í kaffi og hugguleg heitum og Ólöf fór með Eyþóri og Ólöfu Þórunni út að leika og athuga með krækiber í móunum...þannig að þrátt fyrir að við hittum ekki alla sem til stóð að kíkja á þá áttum við bara alveg ágætis dag og komum heim um kl 17.00 ...Cool

Verið góð hvert við annað....Heart

 


Þá fer að líða að lokum þessa ágæta sumarleyfis.....

Við komum heim aðfararnótt miðvikudagsins...það var gott að koma heim...það er alltaf gott að koma heim hversu gaman sem það hefur verið að fara í burtu um tíma....Smile  Við byrjuðum á að fara á Kirkjubæjarklaustur á leið okkar norður á Akureyri...Wink en þar dvöldum við í góðu yfirlæti hjá pabba og mömmu í sumarbústað.. Steini náðið að vinda aðeins ofan af sér þessa 3 daga sem við vorum þar...  Við gerðum nú ekki mikið.... fórum í sund og keyrðum aðeins um nánasta umhverfi ....kíktum heim að Núpsstað... en að öðru leiti hvíldum við okkur....

5juli2008 001  5juli2008 003  5juli2008 016  5juli2008 026 

Við héldum af stað norður á Akureyri á föstudeginum 4.júlí... og komum við á landsmóti hestamanna á Hellu ..  við  hittum Guggu og Hafliða bróður en þau voru með fjölskylduna þar ásamt öðrum vinum.... Joyful  Þegar þarna var komið þá ákváðum við að fara norður Kjöl ..... við ókum í ágætu veðri af stað en þegar norður var komið þá keyrðum við í þoku og rigningu niður í Húnavatnssýslu... og sáum því lítið að af Auðkúluheiði og stíflusvæði Blönduvirkjunar....Frown .. við vorum nú ekkert að erfa það.... því við vorum komin í frí til að hvíla okkur ekkert endilega til að skoða alla skapaða hlutir.. við gerum það bara seinna . Grin  Það voru þreyttir ferðalangar sem komu á Akureyrir um miðnætti eftir 11 tíma ferðalag.  Við vorum búin að fá sumarbústað í Kjarnaskógi og þar héldum við okkur svo næstu vikuna...... og það má segja að við vorum í alveg fullkomnu fríi... því það var ekkert planlagt og tilviljanir og hugdettur látnar ráða ferðinni..  Grin   Þó veðurfar hafi verið nokkuð markerað af skýjum og þoku þá kom sól inn á milli og okkur tókst allavega að brenna aðeins... því pallurinn umhverfis bústaðinn var alveg frábær og við tölum nú ekki um pottinn sem var óspart notaður.....

5juli2008 038  5juli2008 042 

Við hittum ættingja, fórum inn Eyjafjörð..alveg inní botn og skoðuðum sveitina, fórum á sjóstöng á Dalvík ..sem var alveg óskaplega gaman.. síðan var aðeins kíkt í bæinn en að öðru leiti vorum við bara í rólegheitum og lásum eða gerðum það sem okkur langaði til.. Grin  Már vinur okkar kom og dvaldi hjá okkur í tvo daga og Sigrún dóttir Adda og Kristjönu var með okkur í 4 daga.

    sumarleyfi 2008 055

Að lokinni dvöl í Kjarnaskógi héldum við í Laxárvirkjun en þar vorum við í góðu yfirlæti hjá Adda og Kristjönu yfir helgina 11-14 júlí.  Það var sama sagan þar, við bara sváfum fram að hádegi og síðan var bara verið að væflast um í rólegheitum... Gulli bróðir og Bryndís komu við og heilsuðu upp á okkur en þau voru í ferð með húsbílafélaginu á þessum slóðum. Smile Við kíktum líka aðeins niður á Húsavík.  

Þegar við héldum af stað suður þá var ákveðið að fara í gegnum Ólafsfjörð og heilsa upp á Jón bróður Steina, en hann ætlaði að vera komin í Hólkot á mánudeginum 14.júlí en þegar við komum þangað þá var enginn Jón honum hafði seinkað...Tounge og yrði því ekki í firðinum fyrr en um miðnætti...Wink Á leið okkar um bæinn þá hittum við Ásgeir frænda Steina og hann  bauð okkur heim í mat. Við athuguðum með gistingu í bænum.. og fengum eitt af bjálkahúsum hótelsins... það var alveg frábært, allt til als og heitur pottur. Smile Ólöf komst aftur í feitt.... hún fékk að upplifa að veiða á bryggjunni og það var bara mokafli  af ýsu  alveg eins og á sjóstönginni á Dalvík.  Við ætluðum varla að ná henni af bryggjunni þetta var svo gaman og veðrið var líka svo fallegt.. blanka logn og miðnætursól.

En við héldum heim á þriðjudagskvöldið eftir að hafa borðað hjá Nonna mág í Hólkoti...Smileþá var kl. um 22.00 og við keyrðum í gegnum Fljót og yfir Þverárfjall á leiðinni suður.  Eftir því sem vestar dró þá birti yfir og var fjallasýn á leiðinni alveg óskaplega falleg, það var lítil umferð og því frábært að ferðast á þessum tíma.  Við vorum komin heim um kl. 02.30 um nóttina og voru við orðin nokkuð slæpt eftir ferðina og sofnuðum fljótt.   Það var því gott að koma heim og eiga þessa nokkru daga eftir af fríinu og nota þá bara í rólegheit... ég verð þó að segja að ég hefði ekkert á móti því að eiga eftir aðeins lengra  frí núna.... en ég tek bara restina seinna í vetur...... ég ætla að setja inn fleiri myndi í albúmið var að reyna að setja nokkrar inn í pistilinn en það gekk ekki nógu vel.Errm 

Gaman að vera komin aftur, njótið lífsins Halo

 

 


Það ætlar að ganga erfiðlega að koma sér af stað í frí....

þetta er alveg ótrúlegt að þegar loks er búið að ákveða að fara í sumarfrí og ákveða dagsetningu með löngum fyrirvara... þá virðist eins og flóðgátt í verkefnum opnist í vinnunni hjá Steina..... það ætti að skrá hann í frí oftar til að viðhalda verkefnum......Tounge nú höfum við dólað okkur heima yfir helgina því það þarf að gera tilboð sem er áríðandi að gangi í gegn í dag..svo ekki förum við af stað fyrr en í fyrstalagi í fyrramálið .....Woundering Við ætlum að fara austur að Klaustri og hitta þar mömmu og pabba í bústað....Þórður fékk bústaðinn en getur ekki nýtt hann allan tíman svo við ætlum að fara austur fyrir á leið okkar á Akureyri og gista þar á leiðinni...... en við erum svo með bústað í Kjarnaskógi í næstu viku Cool 

Veðurspáin er nú ekki neitt sérstök..... en það er víst ekki við allt ráðið og er stefnan  aðallega tekin á að hvíla sig.  Joyful 

Helgin hefur verið með eindæmum róleg og má segja að við höfum verið að væflast fyrir hvort öðru að mestu leiti.....þó tókum við okkur til og hittum aðeins á fólk.... kíktum til Gulla og Bryndísar á laugardagskvöldið og í gærkveldi kíktum við á Marit og Sigga .....sem við höfum ekki séð síðan í desember.... og svo var heilsað upp á Hreiðar og Trine og þar sáum við hinn frækna sigur Spánverja...Smile að öðru leiti var bara ekkert gert.

Njótið dagsins

 


Annasamri viku lokið....

þá er maður nú búin að kveðja litla drenginn og hann farinn aftur til Danmerkur.   Strákarnir áttu annríkt við að skoða helstu ferðamannastaði svo og sundlaugar og búðir....Danirnir Filipp og Tobías voru afskaplega hrifnir af birtunni á nóttunni, ómældu heitu vatni, sundaugunum, köldu vatni, lambakjöti, Gullfossi, Geysi og bara öllu sem þeir upplifðu á þessum 5 dögum........við hjónin vorum að ræða það að við hefðum sjaldan fengið eins þægilega gesti í svo langan tíma til okkar...þeir bara duttu inn í munstrið eins og þeir væru okkar synir...... þar sem þeir eru miklir aðdáendur Sigurrósar og Bjarkar fannst þeim súrt að fara áður en tónleikarnir yrðu...... en vitneskjan um þá lá ekki fyrir þegar þeir keyptu farið til Íslands......  Að sjálfsögðu var öllum boðið í pönnukökur til mömmu og pabba hvað annað ....og strákarnir tóku vel til matar síns þar... mamma spreytti sig á dönskunni og Filipp hafði á orði að þar sem hann ætti ekki ömmur eða afa ...hvort þau gætu bara ekki verið afi hans og amma líka.........

Ólöf fékk að fara norður í Laxárvirkjun til frænkna sinna og vera þar, þar til við komum norður 4 júlí..hún fór með flugi og var ekki laust við að smá kvíði væri fyrir ferðinni ........og þar held ég aðal orsökin hafi verið  að fara frá pabba og mömmu ........s.s naflastrengurinn frekar stuttur...... en það hristist af henni og er  hún í góðu yfirlæti í Aðaldalnum þó þar sé nú ansi kalt og lítið sem bendir til að það sé sumar.......í augnablikinu.

Það er ekki laust við að við hjónin vitum varla hvað við eigum að gera af okkur, við kunnum ekki að vera ein..... höfum alla okkar tíð verið með börn á heimilinu...og þó Ólöf sé nú orðið bara ein þá er hún á við nokkra.........því það er ansi mikið um að vera í kringum hana og við vitum vel af henni á heimilinu.......þannig að við þurfum að æfa okkur að vera án hennar og allra hinna stundum.

 


Jæja þá kom að því.........

ég veit ekki hvað ég á af mér að gera.........Woundering Ég hef staðið á haus við að gera heimilið klárt fyrir heimkomu yngsta sonarins og vini hans... og viti menn ég er bara búin að gera allt hér heima í bili og meira segja þvoði ég stofugluggann að utan svo allt væri nú ....spik og span... og nú sitjum við mæðgur hér heima og veltum fyrir okkur hvað við getum gert af okkur......ég er nefnilega byrjuð í sumarfríi....Tounge ....og ég held ég kunni það ekki...ég er alltaf með eitthvað  samvikubit yfir að vera ...bara .....heima á virkum degi!!!  ég þarf að venja mig af þessum fjanda. Wink 

Þórður kom heim um miðnætti í gær og komu sem sagt tveir vinir hans með honum þeir Topias og Filipp.  Það var farið nokkuð seint að sofa en fólk fór á fætur um kl. 11.00 og ekki verið að hangsa neitt því um hádegið var lagt af stað í ... Gullna hringinn.... en eins og ég hef nefnt áður hefur gripið sig óhemju ættjarðarást hjá Þórði og verður kappkostað við að sýna vinunum sem mest af Íslandi þessa 5 daga sem þeir stoppa...Grin  Þar sem bíllinn okkar tekur bara 5 þá fór Steini með í ferðina sem sérlegur bílstjóri og leiðsögumaður....en við mæðgur sitjum heima að þessu sinni.....við erum að spá í að fá okkur göngutúr niður í Elliðaárdal og uppá Fylkisvöll og sækja bílinn til Nonna og gera okkur svo einhvern dagamun í góða veðrinu... Cool

 Njótið dagsins.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband