Fréttir af fjölskyldunni.....

Þetta eru orðnir  nokkurskonar frétta pistlar af fjölskyldunni hjá mér ...eða bara dagbók......en það er nú í góðu lagi.....Þessi vika hefur liðið ansi hratt ...það var bara mánudagur og föstudagur.......Tounge en ég er líka búin að vera óskaplega löt eitthvað og lítið gert.....dreif mig til læknis á mánudag eftir að hafa farið nokkrum sinnum í blóðþrýstingsmælingu .....og viti menn ég er komin á lyf eins og líklega hálf þjóðin við blóðþrýstingi annars var bara ekkert að mér og allar mælingar í góðu lagi.....Wink ... ég er nú samt ekki sátt við að þurfa að taka lyf......Frown 

Eins og alltaf er allt á ferð og flugi í kringum Ólöfu hún hefur verið að talsetja í vikunni og spila handbolta, þeim gengur enn vel í handboltanum eru  efstar í riðlinum og allar líkur á að þær vinni deildina með sama áframhaldi.......Tounge  Selma Björns hafði samband við hana og bað hana að koma til liðs við Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu ...það eru komnar svo margar sýningar að það vantar að bæta við krökkum til að jafna álagið ....og að sjálfsögðu sagið mín já .....Haloekki málið að hoppa inní leiksýningu í þjóðleikhúsinu......Grin Daman hefur ekki látið laust né fast með að fá hárlengingar ....hún hefur verið að nota hárlengingar sem smelltar eru í hárið en hún vildi fá lengingar sem hún þyrfti ekki alltaf að vera að taka úr og setja í .....svo nú var látið til skara skríða í gær og daman er nú með sítt hár.........hún borgaði þetta sjálf ...enda er þetta dýrt ....en þetta er hár með ábyrgð í 1 1/2 ár og er alveg ótrúlega eðlilegt......enda ekta hár....Wink

Ég talaði við Þórð í vikunni og var mjög gott hljóð í honum . Hann fór og talaði við námsráðgjafa í menntaskólanum sem hann er búin að skrá sig í og var bara mjög ánægður eftir það.....hann fær svar í apríl um það hvort hann þarf að taka einhver inntökupróf þá verður það líklega enska og stærðfræði til að sjá hvar hann stendur í þeim fögum annars er hann  komin inn í skólann og byrjar í haust ......það er eins og það hafi létta yfir honum við að taka þessa ákvörðun.....Wink

Allt er gott að frétta af Palla og Herdísi þau una sér vel á Ísafirði ....tala um ótrúlega veðursæld og þó veður hafi verið vitlaus fyrir vestan oft í vetur þá nær það ekki alltaf inn Ísafjörð....allavega eru þau að læra á dreifbýlið.....Smile 

Nonni og Tedda eru bara á sínu róli ......vinna og skóli....Tounge

Veður hefur verið ágætt  undanfarna daga, hlýtt  en gengið á með rigningu eða svona vor í lofti....Lóan er komin.....en það á nú að kólna í næstu viku og í dag er spáð stormi sunnan og vestanlands, þannig að enn eru sviptingar í veðrinu......Woundering

Látum gott heita í bili kv. Sigga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband