Alltaf eru það jafnmikil kraftaverk....

þessu litlu nýfæddu börn Smile Við fórum í dag og skoðuðum nýjasta meðliminn í fjölskyldunni.  Anna og Steini voru að eignast lítinn dreng sem nefndur hefur verið Mattías Máni.  Ég mundi bara ekki eftir því að nýfædd börn væru  svona lítil, allavega voru mín börn ekki svona lítil, þó telst 14 marka barn ekki lítið barn, en hann var óskaplega fallegur og ekki laust við að kæmi smáááá......... ömmutilfinning í mig og að maður táraðist yfir þessu litla kraftaverki  Wink en eins og Jóhanna Sig sagði "minn tími mun koma" . Kannski fæ ég að verða amma einhvern tímann, hver veit......... Halo

Í gær vorum við svo í útskriftarveislu hjá Lilý, hún var að útskrifast úr HÍ sem bókmenntafræðingur. Hún skrapp hingað heim til að útskrifast,  frá London en þar hefur hún búið, ásamt kærastanum sínum honum Arnari, í eitt ár og ætlar að vera þar eitthvað áfram.  Smile

Annars var helgin hin rólegasta, mikið sofið og bara hvílst..... setti jú í nokkrar þvottavélar og gekk frá ýmsum dóti sem farið var að safnast upp hér og þar, horfðum á fótbolta og handbolta í TV .. annars lítið meira að segja um það.Tounge

Farið varlega, góða nótt Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband