Það gengur mikið á þessa dagana...

Ég er svo heppin að eiga pabba sem vill allt fyrir mig gera og ekki er hún mamma mín síðri....InLove  Pabbi er að verða búin að mála þriðja herbergið og við að umbylta og breyta þeim sem lokið er.... heimasætan er nú loksins komin með herbergi sem hæfir táningi .......og hún hefur látið fylgja með rökum fyrir þörf á slíku herbergi að ég muni líklega ekki sjá rusl í hennar vistarverum ....ever.... við sjáum nú til með það......Joyful  hér eru svo herlegheitin ........

Herbergi heimasætunnar   herbergiogpeysa2des08 001

og svo er eitt herbergi bara orðið skrifstofu og tölvuaðstaða fyrir okkur hjónin og þar með losnaði ég við tölvu úr stofunni......og það var nú gott.Smile  þriðja herbergið verður svo gestaherbergi.

Ég er afskaplega róleg í tíðinni núna ....ég er ekki farin að kaupa jólagjafir og ég finn bara ekki fyrir stressi yfir því.......ég ætla að baka uppáhalds smákökusortina fyrir heimasætuna á morgun þ.e Brúnu augun....þessar smákökur hafa allir krakkarnir mínir tekið ástfóstri við og hefur nánast nægt að baka hana marfalda eða aftur og aftur .......því enginn kannast við að fara í kökuboxið en samt hverfur allt........en það hefur bara verið gaman að því og kökurnar eiga líka að vera borðaðar í desember.....Halo  Ég var nú að ræða við dótturina um  að hún hefði engan tíma til að gera neitt..... ég vildi gera eitthvað með henni baka eða versla ... þá lét  hún  mig vita að  næstu þrír dagar væru því miður fullbókaðir og ég spurði hana hvað hún væri eiginlega að fara að gera???  mamma!!! vinir mínir tala við mig og planleggja fram í timann ef þeir ætla að vera með mér því þeir vita að ég hef svo margt að gera ......þú þarft að fara að planleggja meira fram í tímann ef við eigum að finna tíma saman........Errm  ekki sniðugt fannst mér ........mér fannst þetta frekar pirrandi........panta viðtalsbil hjá sinni eigin dóttur.....á ekki við mig......mér detta hlutirnir meira "spontant" í hug ...hér og nú.... hvaðan skildi hún hafa þetta??????

Ólöf á að fara  út í Latabæjarstúdíói á morgun þá á að taka upp viðtal við hana um Latabæ sem sýna á í "Íslandi í dag" á morgun, föstudag held ég ....á stöð 2.... þetta dettur svona upp úr henni meðfram öðru ......Það verður engin sýning á "Réttu leiðinni" á morgun, seldust ekki sýningarnar, en það er uppselt um helgina.....fyrir vikið kemst hún í punktaferð sem farin verður í skólanum á morgun......Smile  og hún er mjög glöð yfir því.......

Þá er þessum degi að ljúka og nýr kemur á morgunn með nýjum tækifærum og áskorunum.

 


Það er orðið langt síðan síðast...........

og mál til komið að segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið síðan síðast.......Smile  Svona fyrir utan öll þjóðfélagsmálin sem allir hafa verið uppteknir af þessar síðustu vikur þá hefur nú lífið haldið áfram...... sem betur fer.....Smile Frumburðurinn hann Nonni varð 30 ára núna 25.nóv og hélt hann veglega veislu um síðustu helgi fyrir vini og vandamenn.....og svo skemmtilega vildi til dagblaðið fékk sig knúið til að birta við hann viðtal og frétt í tilefni dagsins...Þetta er nú annars svo skrýtið að ég skuli eiga þrítugt barn því mér finnst ég sjálf varla vera eldri.......Grin 

Þórður kom heim frá Danmörku og stoppaði yfir helgina til að taka þátt í afmælinu og tók hann saxafóninn með heim og spiluðu hann og Skúli vinur hans í veislunni. Bræðurnir Nonni og Palli buðu honum heim svo hann gæti verið með okkur......InLove  Palli og Herdís komu frá Ísafirði, þau flugu suður og fóru svo  á bílnum hans Palla vestur.....við höfðum smá áhyggjur af þeim á leiðinni  því spáin var þannig og komið myrkur og bíllin ekki sá besti til vetraraksturs, en ferðin  gekk bara  vel hjá þeim.  Herdís hefur loksins náð sér af þessum veikindum sem hrjáðu hana í 3 vikur eftir að hún kom vestur og er komin af stað í vinnu..... Smile Palli fór í ferð með rannsóknarskipinu  Árna Friðrikssyni um Ísafjarðardjúpið í  rúman sólahring... og varð ekki sjóveikur..........Wink  hann kemur til með að fara í ferðir  í framtíðinni og vinna með neðansjávarmyndavélina sem staðsett er á Ísafirði........honum finnst þetta mjög spennandi og gaman að takast á við nýja hluti.

Ólöf hefur haft meira en nóg að gera undafarið...það á að frumsýna jólaleikrit leiklistarhópsins "Borgarbarna" sem starfar á vegum "Sönglistar" núna á morgun sunnudag kl. 18.00 í Iðnó.  Leikritið heitir "Rétta leiðin" og er góður boðskapur í kringum jólin.....WinkHennar tími undanfarið hefur semsagt farið í æfingar og mikið verið um leyfi frá skóla.  Hún hefur brugðið sér að keppa í handboltanum og er Fylkir í efsta sæti Íslandsmótsins í 4 fl. einnig komust þær í 16 liða úrslitin í bikarnum á dögunum ....þannig að það er rífandi gangur í þessu öllu saman.....Grin Á morgun er líka síðasta sýning Skilaboðaskjóðunnar og ætlar hún að sjá þá sýningu og síðan er smá veisla í lokin fyrir leikarana sem unnið hafa að henni síðasta árið ... það er því nóg að gera á öllum vígstöðum....Smile 

Hér hafa verið framkvæmdir í gangi hann pabbi minn hefur verið að mála fyrir mig svefnherbergin og lagfæra það sem aflaga hefur farið InLove og á hann miklar þakkir skildar fyrir það, við höfum verið að taka til og grisja því það er svo skrítið að það er alltaf nóg  að dóti og drasli sem hægt er að henda ...Joyful 

Lengra höfum við þetta ekki að sinni.

Orð dagsins:  "Það er notalegt að vera mikilvægur, en það er mikilvægara að vera notalegur."

 


Það fæst ekkert ókeypis ..........

sagði varaforseti Venúsavela eða var það Kólembía .....heyrði þetta í morgunfréttunum þegar ég var að vakna......þar hefur fólk tapað miklum upphæðum sem það setti í plat fjárfestingafyrirtæki vegna þess að  því  var boðin svo há ávöxtun.....manninum fannst ástæða til að senda út fréttatilkynningu til landsmanna að leggja peninga ekki inn hjá þeim sem lofuðu tvöföldun á ávöxtun.....því ekkert er ókeypis.....það er alltaf einhver sem borgar...ekkert fæst fyrir ekki neytt.....Blush 

Foreldrar mínir hafa alltaf hamrað á því við okkur krakkana  og hafa haft þá skoðun að það er alltaf einhver sem greiðri brúsann....því í ósköpunum klingdi ekki einhverstaðar bjöllum þegar allir voru að græða og græða meira en enginn virtist þurfa að vinna til þeirra....  peningar spretta ekki upp af sjálfu sér ......... og þetta er bara almenn skynsemi sem segir manni að peningar vaxa ekki á trjánum..GetLost   Hvað hafa þessir sprenglærðu fjármálaspekúlantar verið læra í Háskólunum .....hvernig á að féfletta fólk án þess að það fatti það.........ég bara spyr....Woundering


Sært stolt.....

ég verð að segja það að mér líður skrítilega þessa dagana....mér finnst ég særð....það er sært þjóðarstolt....ég er miður mín yfir því skipbroti sem þjóðin hefur orðið fyrir.... mér finnst ekki vera nóg að gert ......að við séum ekki að verja okkur með öllum tiltækum ráðum...... að við séum ekki að slá til baka........ það er verið að mjatla í okkur upplýsingar......þær eru að leka einhvernvegin út til okkar ...trúnaðarmál!!!...skrýtið......ætli margir séu með svona órekjanleg netföng eins og framsóknarþingmaðurinn notaði gegn Valgerði til að leka upplýsingum...... ég hef misst tiltrú á það fólk sem er í forystu landsins...misst trúna á stjórnendur bankanna þó svo búið sé að setja annað fólk í stjórnir.........ég vil ekki að fólk missi traust á mér....en ég er bara ein af öllum  íslendingum sem ekki verður hægt að treysta í náinni framtíð og það er sárt...... samt hef ég alltaf staðið við mitt og má ekki til þess hugsa að einhver missi traust á mér.........Crying

En nú vil ég snúa mér að öðru og skemmtilegra efni......Ólöf fór í stigspróf í dag í söngnum og tók 2.stigið og að hennar sögn gekk það vel.... Smile það gengur alltaf allt vel hjá henni, ef maður spyr hana....... Tounge Steini beið eftir henni á meðan hún var í prófinu því hún átti að vera mætt niður í Borgarleikhús strax á eftir til að taka þátt í "Skrekk"  hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, það kemur í ljós hvort þau komast upp úr undankeppninni í kvöld en það eru tveir skólar sem komast áfram í kvöld en sjö eru að keppa í dag..Wink  mjög spennandi...  Síðan er allt á fullu við æfingar á "Réttu leiðinni" sem er jólaleikrit fyrir börn sem leiklistarhópurinn borgarbörn sýnir á jólaföstunni. Þannig að Ólöf slær ekki af......

Þórður er að koma til eftir sýkinguna sem hann fékk í síðustu viku...hann hefur þó verið að vinna því hann þarf að vinna sér í haginn vegna leiksýninga ferðarinnar til  Árósa, Álaborgar og Silkiborgar  í lok mánaðarins.

Palli og Herdís eru búin að koma sér að mestu fyrir á Ísafirði, Herdís byrjaði  á að taka upp einhverja óþverra pest svo hún gat ekki byrjað að vinna strax en Palli er byrjaður og lýst bara  vel á..hann á að fara á sjó í fyrsta skipti nú á fimmtudaginn til að taka neðansjáfarmyndir úr fiskeldiskví....spennandi að fylgjast með þessu.. Smile

Nonni minn er síðan að nálgast 30 ára afmælið og ætlar hann að halda upp á það með pompi og prakt ..... og verður bara gaman að hitta alla og gleðjast þrátt fyrir allt tal um kreppu....Smile 

Nú fer að styttast í að Gulli og Bryndís komi heim en þau eiga að koma til landsins 17 nóv. Það hefur verið gaman að fylgjast með ferðum þeirra á Nýja Sjálandi...en kannski ekki eins spennandi að koma heim í kreppu umræðuna .....FootinMouth 

En hvað um það  " Við látum ekki deigan síga "


Litli drengurinn (stóri) lasin úti í löndum og engin mamma nálægt.....

já Þórður minn á nú bágt fjarri mömmu í útlöndum....FootinMouth Hann var svo óheppinn að fá slæma sýkingu þannig að hann þurfti að fara í aðgerð á spítala í Danmörku í gær....greyið var búin að vera illa haldin um helgina ....og var bara kvölum kvalinn....Frown Það mun taka hann 1-2 vikur að ná sér alveg aftur og geta verið miklir verkir fyrstu dagana....auðvitað erum við búin að vera á línunni og leggja honum ráðin...og það er ekkert gott að vara svona langt í burtu þegar eitthvað bjátar á.....en foreldrar vinkonu hans tóku bara þá ákvörðun að taka hann heim til sín og hlúa að honum á meðan það versta gengur yfir.....InLove og ég verð að segja það að ég er mjög fegin að hann er undir smá eftirliti í nokkra daga....það er nú bara þannig að maður er alltaf að reyna að halda utan um alla.....Toungeen hann mun ná sér fljótt og bara gott mál að hann skildi þó fara til læknis.    Það er svo merkilegt að þessi börn manns spjara sig nú þegar á hólminn er komið þó maður haldi ekki stöðugt í höndina á þeim ......Grin er það þá ekki bara mælikvarði á að maður hafi náð að skila þeim af sér til manns.....Halo

 

Orð dagsins:  Fyrirstöður þurfa ekki að stöðva þig. Ef þú hleypur á vegg, ekki snúa þér við og gefast upp. Athugaður hvort hægt er að klifra yfir hann, fara í gegnum hann eða fara í kringum hann.

Krakkarnir skiluðu sér til Ísafjarðar.....

um kl. 15.30 í gær......það var greiðfært alla leið sem betur fer ....Smile ég var búin að byggja upp svolítið stress yfir því að þau væru að flytja á þessum tíma og eftir þetta veðurskot sem gekk yfir í síðustu viku....Crying ég á þetta til.......Blushmaður er nú bara svona gerður vill halda utanum alla sína, hvar sem þeir eru......Halo  Það gekk vel að tæma bílinn því væntanlegur yfirmaður þeirra kom við annan mann og hjálpaði þeim og Gauti bróðir Kristjáns vinar Palla og væntanlegur nágranni þeirra komu líka  til hjálpar.....Smilesvo þetta gekk hratt fyrir sig......en þau eru þreytt...búin að vera strembin vika að undirbúa og koma sér vestur.... en nú tekur við nýr kafli í lífinu...að koma sér fyrir í nýjum heimkinnum...kynnast nýju fólki og takast á við nýja vinnu .....ég trúi því að þetta eigi eftir að varða frábær tími hjá þeim......InLove

Þórður er í Árósum núna, tónskólinn hans fór í helgarferð, í heimsókn í tónlistaháskólann í Árósum. Þar hitti hann gamla skólafélaga frá Íslandi og segir  þetta vera alveg frábæra ferð.  

Brosum og höfum gaman að þessu .....

 


Þetta hefur verið nokkuð annasöm vika undanfarið...

ég hef varla haft tíma til að vera í vinnunni....Tounge stundum er eins og allt lendi á sama tíma og þá þarf maður að velja og hafna....og það er leiðinlegt...Frown  En það er að sjúklingnum Ólöfu að frétta að hún er orðin spræk sem lækur og um leið og hún var laus við nálina úr handleggnum þá var hún óstöðvandi....Grin sem sagt sýkingin er á góðu undanhaldi og fóturinn að verða góður. 

Nú eru Palli og Herdís lögð af stað vestur og eru líklega núna kl 13.00  um það bið að koma á Steingrímsfjarðarheiði, það er greiðfært vestur og ætti því ferðin að sækjast vel... Við gengum frá íbúðinni í gærkeveldi  kláruðum að þrífa og skila lyklum. Steini var  búin að elda fullann pott af kjötsúpu þegar þrifunum lauk og komu pabbi og mamma, mamma Herdísar og Palli og Herdís í matinn, og ekki var að spyrja að því,  kjötsúpan var frábær.........Smile  en hún var svo ríflega útilátin að ég held að Steini verði að borða hana næstu vikuna....ha..ha...

Við opnuðum Morgunblaðið í morgun og við okkur blasti mynd af Nonna ...og viti menn ....hann var myndaður fyrir utan ríkið ....og hvað, hann var að fylla bílinn af bjór og hvítvíni....Tounge... en sem betur fer kom nú fram að hann væri að versla inn fyrir þrítugsafmælið sitt......Grin þannig að það leit ekki alveg eins illlllllllllllllla út........Tounge en þetta var neyðarlegt......

Nú á eftir ætla ég að skeppa í kaffi hjá Barðstrendingafélaginu og hitta fólk að vestan ....það verður bara gaman.......annars verður dagurinn bara á rólegum nótum......Smile 

Góð orð:

- Hvernig við hugsum sést í hegðun okkar. Viðhorf eru speglar hugans. Þau endurspegla hugsanir okkar.-


Alltaf leggst manni eitthvað til.....

Enn eitt  árið færðist yfir mann í gær og fór það nokkuð ljúflega yfir alla vega var ég ekki mikið vör við aldurshækkunina....Grin ég hellti uppá könnuna og sletti í nokkrar kökur.... það komu þó nokkrir við og fengu sér kaffisopa og var það mjög ánægjulegt.....það er nú þannig að maður þarf eiginlega að hafa eitthvert tilefni til að drífa sig í að hóa í fólki saman.....og þá er nú gott að það er allavega eitt afmæli á ári hjá heimilismeðlimum sem hægt er að nota....svo þarf maður bara að fara að búa til aðstæður ....það er jú þannig að maður er manns gaman....Wink 

Dagurinn var nú ekki búin þegar gestir fóru að tygja sig heim því Ólöf var búin að vara að kvarta um verk í fætinum yfir daginn og var ég nú ekki að gera mikið úr því þó hún hefði fengið blöðru undan íþróttaskónum....þetta gæti nú ekki verið svona vont...Blush ....þetta er nú svolítið líkt mömmu minni...henni fannst ég nú svolítil óhemja þegar ég var krakki....  jæja um ellefu leitið í gærkveldi fer ég nú að skoða þetta... Blushþá var hún búin að fá að fara í fótabað og var áfram að barma sér.....þá sé ég að það eru að myndast rákir upp eftir ristinni á henni svo ég ákveð að fara með hana á slysadeildina.. þar kom í ljós að komin var ígerð í fótinn og  sogæðasýking....Frown ákveðið var að setja upp nál hjá henni og gefa henni sýklalyf í æð auk þess að skera í sýkinguna.....þannig að þessi ferð var nú ekki beint notaleg.......þurfti mikið að stinga hana því ekki fundust æðar....þær hreinlega hlupu undan ....en það tókst að lokum ...við komum heim um kl. 02.00 í nótt og áttum að mæta aftur í lyfjagjöf kl. 08.00 í morgun og svo förum við aftur kl. 14.30 þá á að meta hvort hún getur farið yfir á inntökulyf... þannig  að við vorum lítið sofnar í nótt og ákvað ég að vera með henni heima í dag......InLove  það er nú langt síðan ég hef verið heima yfir veiku barni...en það geta komið svona atvik og þá gerir maður það sem þarf, ..þó barnið sé orðið "stórt".

Ég hef verið að fylgjast með ferðum Gulla og Bryndísar á Nýja Sjáland og eru þau nú á viku ferðalagi með Nonna bróður Bryndísar um suður hluta Nýja Sjálands og virðist vara margt að sjá og spennandi staðir að skoða....það verður gaman að sjá myndir frá ferðinni þegar þau koma heim en það verður ekki fyrr en 17 nóv. en Gulli á annars afmæli á morgun 31 okt. þá verður hann 49 ára gamall ....skrítið litli bróðir minn að nálgast 50 árin....Grin

Fórum á slysadeildina um 14.30 og komum þaðan nú um fimm leitið, ekki losnaði Ólöf við nálina heldur þarf hún að koma kl. 23.00 í kvöld og svo aftur í fyrramálið um kl.8.00 þá verður metið hvort hún losnar við nálina en þetta er samt á góðri leið.....Smile.

Brosum það er frítt..........Grin


Það er að koma ein enn helgin......

þessi vika hefur liðið ansi hratt .....það verða komin jól áður en við snúum okkur við.....Tounge..það var gott viðtalið við konuna frá lýðheilsustöð í morgun...hún sagði sögu af dóttur sinni ....sem hafði áhyggjur af jólunum......af því þetta yrðu kreppu jól og því ekkert hægt að gera.......hún settist niður með dóttur sinni og fór yfir, hvað það væri sem dótturinni þætti mikilvægast á jólunum...... og viti menn stúlkan taldi upp allt sem tilheyrði hefðum fjölskyldunnar...að baka.....að spila....fá kakó....og vera með fjölskyldunni .....eitthvað var týnt meira til ...og móðurinni tókst að sannfæra dótturina að jólin muni koma með öllu eins og venjulega.............Wink Þetta er nú það sem ég upplifi líka með mín börn þó einungis eitt sé eftir heima í dag, þá eru það hefðirnar og fjölskyldan sem skipta máli í hugum þeirra og að halda hlutunum nokkurn vegin í föstum skorðum jól eftir jól...InLove.. laufabrauð...brúnu augun (smákökur) ..allir saman...keyra út jólagjafir....og svo er lengi hægt að telja.....s.s.  þegar upp er staðir eru gjafirnar ekki aðalatriðið heldur ramminn og hefðirnar sem fjölskyldan hefur skapað sér í gegnum árin.......InLove Ólöf hefur allavega ákveðið að hún ætlar að hafa ALLA heima hjá sér....... eða þannig ....hún þarf samt að gera sér grein fyrir því  að nú deilum við bræðrunum alla vega með fleirum....

Ég var að tala við Þórð í gær og er allt gott að frétta af honum.....leiksýningin sem leikhópurinn hans  setti upp í haust verður sýndur í Silkiborg, Álaborg og Árósum helgina 25-27 nóv...og þau munu fá greidd einhver laun fyrir ....mikill fögnuður hjá þeim með það....Smile.

Nú er bara rúm  vika í að Palli og Herdís fari vestur ......ekki eru gæfulegar fréttirnar að vestan í dag....brjálað veður ...snjóflóðahætta og rafmagnsleysi.....en ég man nú svo sem  eftir svona veðrum þegar ég bjó fyrir vestan sem krakki og ekki truflaði það mann þá ... en líklega og vonandi verður þokkalegt veður um næstu helgi svo þau komist vestur með dótið sitt.....Woundering

En orð dagsins:  - Enginn getur látið þér finnast þú minnimáttar, án þíns samþykkis..-                       þetta eru nú nokkuð góð orð og verðug til umhugsunar...

 


Æ.... það er gott að það er komin helgi.......

Maður er bara þreyttur eftir þessa viku.....það hefur verið erill í vinnunni og ég er ekki frá því að einhver ókyrrð sé í loftinu í kringum börnin ......þau eru alveg ótrúlega næm á líðan þeirra sem eru í kringum þau ....þó svo maður haldi að maður sér að halda börnunum utan við það sem er að gerast á Íslandi í dag...Frown  En að sjálfsögðu eru allir að gera sitt besta og halda sinni "rútínu" það er bara það sem okkur ber að gera....Wink 

Við höfum verið að fylgjast með Gulla og Bryndísi á ferð sinni til Nýja Sjálands, þau hafa komið sér upp bloggsíðu og sett þar inn myndir og það er eins og maður sé á ferðalagi með þeimSmile Þau hafa verið í Hong Kong í 3 daga og skoðað sig um en eru nú á leiðinni til Nýja Sjálands það tekur um 10 tíma í flugi og síðan 1-2 tíma í innanlands flugi, þannig að líklega verða þau orðin þreytt þegar komið verður á leiðarenda í nótt Tounge

Við höfum verið að tala við Þórð í Danmörku, hann lætur vel af sér, ekki orðið fyrir neinu aðkasti Smile Hann hitti Hafliða og Guggu í dag, en þau eru í helgarferð í Köben, ég frétti af því að þau hefðu mætt vorkunn á smörrebröðsstofu í dag en ekki verið kastað út fyrir það eitt að vera íslendingar Smile

Velgengni.is hefur sent mér heilræði  og hvatningarorð á hverjum degi, þessi orð hitta í mark og vekja mann til umhugsunar, þau eru jákvæð, hvetjandi og uppbyggjandi, ég hef sett þessi orð upp á töflu fyrir allt starfsfólk frá því í fyrravetur og það er bara orðið hluti af dagsverkunum að skoða þessar sendingar. Í ástandi eins og gengur yfir þjóðina núna þá er þetta mannbætandi  og hvetjandi til að takast á við dagana og lífið.InLove

Látum gott heita í dag "gangið hægt um gleðinnar dyr" Halo

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband