Ekki er nú hægt að segja að blogg vinnan sé afkastamikil...
20.4.2008 | 20:42
því það fer að nálgast hálfan mánuðinn síðan ég skrifaði síðast...en nóg um það hér er ég komin. Síðustu dagar hafa verið ótrúlega erilsamir, bæði í vinnu og fyrir utan hana. Verkefnin bætast alltaf við í vinnunni og er nú svo komið að ég upplifi mig .... eins og ég sé að hræra í tíu pottum samtímis og nái ekki að gera neitt almennilega..... og viti menn þetta er ekki góð tilfinning.
En upp með húmorinn..... það styttist óðum í Skotlandsferðina við leggjum í hann snemma morguns 24.apríl og það eru allir ákveðnir í því .....að þetta á fyrst og fremst að vera skemmtileg ferð og er ég ekki í nokkrum vafa að það tekst því þetta er ekki í fyrsta sinn sem megnið af hópnum hefur ferðast saman til útlanda..... mikið fjör og mikið gaman....
En snúum okkur aðeins að því hvað er að gerast í fjölskyldunni.... nú Þórður og Isabell hafa fengið nýja íbúð...þau fá hana afhenta 1.maí. Þetta er stúdenta íbúð sem staðsett er í blokk sem eldri borgarar búa í ....það eru víst nokkrar stúdentaíbúðir í húsinu...þau fá 57 fermetra íbúð á 4.hæð og er lyfta í húsinu. Þarna geta þau verið nokkuð örugg með húsnæði næstu árin, alla vega á meðan Isabell er í sínu námi...
nú nú .... Ólöf varð deildarmeistari b.liða í handbolta í 4.flokki og verður keppt um íslandsmeistara titilinn nú í næstu viku....ég missa af því en ég get ekki verið alstaðar svo það verða aðrar mömmur að taka yfir stuðningshrópin á pöllunum
... það eru jú fleiri mömmur að horfa á en pabbar í okkar hópi......ég mun bara vera með þeim í anda.
Nú er leiklistarskólanum hjá Ólöfu að ljúka og verður lokakvöld (að ég held) í Borgarleikhúsinu á síðasta vetrardag þann 23.apríl. Sýningin sem krakkarnir sýna er eftir Shakespeare en 23.apríl er 444. afmælisdagur hans og verða unglingar um allan heim að sýna verk eftir hann í tilefni dagsins... hefst fyrsta sýning í Nýja Sjálandi og endar á Haíti. Hér er hægt að sjá hvað er í gangi í tilefni dagsins í hinum ýmsu löndum á öllum tímabeltum. www.ssf.uk.com/international/24/schedule.
Nú fer sýningum á Skilaboðaskjóðunni að ljúka á þessari vorönn og hún fer í frí fram á haust... Ólöf var að sýna í dag og tók hún svo á móti frændsystkynum sínum Eyþóri Erni og Ólöfu Þórunni í lok sýningar og sýndi þeim baksviðs í leikhúsinu og fannst þeim það ekki leiðinlegt....
Það hefur verið ágætt að gera hjá Palla og Nonna undanfarið. Ástinn hefur bankað að dyrum hjá Palla og bara gaman að því.. hann og vinkona hans Herdís ætla að skreppa á Akureyri um næstu helgi og hafa það skemmtilegt og er ég ekki í nokkrum vafa um að það takist... Nonni er komin á fullt í þjálfuninni hjá Fylki... mér sýnast allar helgar verða uppteknar í keppnum með báða flokkana næstu mánuði... en þetta er hans líf og indi svo það er gott mál. Tedda les og les svo við sjáum ekki mikið af henni þessa dagana.
Síðan snúumst við hjónakornin um þetta allt....
Látum þetta gott heita í kvöld.
Athugasemdir
Til hamingju með nýju myndina, nú gleðst Steini
Bryndís (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 12:12
Takk fyrir innlitið hjá mér. Flott stelpan þín með bikarinn
Ásta María H Jensen, 22.4.2008 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.