Ja hérna blogg á 3ja ára fresti....

Á morgun eru 3 ár síðan ég skifaði inn á þessa síðu...komin tími til að uppfæra nýjustu frétti eða framhald af þeim sem skrifaðar voru síðast ...cool Á laugardaginn 20 júní útskrifast Þórður minn úr HR sem Tölvunarfræðingur og er er ég mjög stolt af honum að klára þetta nám. Hann lauk námi frá Keili 2012 og síðan þá hefur hann eignast konu hana Guðrúnu Jakobínu  og lítinn dreng hann Jón Þorstein sem kom í heiminn í des 2013. Það hefur aldeilis fjölgað í fjölskyldunni því nú erum við orðin 14 talsins, með okkur þá eru 4 börn,4 tengdabörn og 4 barnabörn og geri aðrir betur á ekki lengri tíma....

Palli minn er á ferð og flugi um allan heima að stýra Gavía kafbátum eða kenna öðrum á þá ásamt því að halda námskeið hann og Herdís eignuðust hann Hilmi í febrúar 2013.

Nonni hefur hætt kennslu í bili og vinnur nú hjá AJ vörulistanum ásamt því að þjálfa hjá Fylki en hann og Tedda eru búin að eignast tvær dætur frá því ég skrifaði síðast, hana Birnu Karitas í jan 2013 og Maríu Hafdísi sem Nonni fékk í afmælisgjöf í nóv 2014.

Svo er það Ólöf Kristín en hún flutti að heiman og fór að búa með honum Birki sínum  fyrir tveimur árum, hún tók sér hlé frá námi og hefur unnið á leikskóla í tvö ár en nú er stefnan tekin á HÍ í haust og læra lífeindafræði og Birki sem er kokkur ætlar að bæta við sig í náminu líka,klára stúdentinn  svo nú ætla þau að flytja heim til foreldra Birkis og helga sig náminu á næstunni....hún er alltaf að talsetja og nóg að gera í því en leiklistinn verður sett á hilluna í bili....laughing 

Okkur hjónakornunum líður vel hér í Kópavogi og eignuðumst þennann líka fína pall á síðasta ár og vonunum að sólin fari að láta sjá sig svo hægt sé að nota hann....cool

maí 2015 013

maí 2015 026


Hæ hæ........

Bara svona af því ég datt hér inn í dag eftir 3ja ára fjarveru þá  er best að segja eitthvað ....Blush   ég var að skoða það sem ég hef skrifað síðast eða árið 2009 ..... Tounge   það er mikið vatn runnið til sjáfar síðan....t.d. Ólöf Kristín á núna bara eitt ár eftir í Verslunarskólanum...hún er enn í handboltanum hjá Fylki og spilar í meistara deildinni næsta vetur..svo er hún enn að talsetja...hefur eignast bíl og á kærasta ...Palli og Herdís giftu sig 2011 og eru flutt í eigið húsnæði í Reykjavík ....Herdís í mastersnámi í auðlindastjórnun og Palli að vinna við ransóknarkafbáta og ferðast á fjarlæga staði til að þjónusta þá...Joyful .  Þórður lauk prófi frá háskólabrú Keilis og er fluttur að heiman...stefnir á háskólanám næsta vetur.... Cool Nonni og Tedda búa í Árbænum og una sér þar vel ....Nonni að kenna og þjálfa fótbolta...og Tedda lauk diplóma í opinberi stjónsýslu....Smile ..Frúin rifjaði upp prjónataktana sem hafa legið í dvala í 25 ár og hefur verið óstöðvandi í lopapeysu framleiðslu síðan.....Tounge en stærsti og merkasti atburðurinn er að við hjónin erum flutt úr Árbænum þar sem við  höfum átt heima í 30 ár ....það kom til af því að það bara fannst ekki húsnæði sem hentaði okkur þar svo við urðum að horfa í nýjar átti og að endingu lentum við í Kópavogi og fundum okkur yndislega íbúð sem hentar okkur frábærlega....Smile ...nú læt ég þetta gott   heita  hef stiklað á stóru yfir þessi 3 ár og kanski líður ekki svona langt á milli að ég heimsæki þessa síðu....Kissing

Það hefur lítið heyrst frá manni leeeeeeengi.....

Það er svona að vera komin á fésið ..fyrir vikið hefur bloggið verið vanrækt......Woundering   ég ætla ekki að gera bragarbót akkúrat í dag en  en ég mun gera það fljótlega og gera smá úttekt á sumrinu ...en ég mátti til að setja inn myndband af Ólöfu Kristín núna.......Smile  

Það er orðið mjööööööööög langt síðan ég var hér síðast.....

fékk einhverja ritstíflu .......eða nennti þessu ekki....en nú er ég komin aftur og mig langar ennþá ekkert til að skrifa um fréttir eða landsmálin og held mér bara við lífið og tilveruna hjá þessari fjölskyldu...Grin  Það er sem sagt allt gott að frétta af okkur hér í Hraunbænum, maí mánuði var erilsamur hjá okkur öllum og lítið pláss fyrir annað en vinnu og skóla hjá fjölskyldu meðlimum en nú hyllir undir sumarleyfi og fer húsmóðirin í frí 29.júní og eiginmaður um svipað leyti eða hann hættir bara alveg því ekki liggur ljóst fyrir ennþá hvort vinnustaður hans lifir lengur en til mánaðarmóta.....FootinMouth dóttirin mun verða í fríi með foreldrunum því ekki er vinna nema fram að sumarfríi...Smile 

Ólöf Kristín tók 10.bekkinn með stæl var með 9,3 í aðaleinkunn hún hefur sótt um Verslunarskólann og vonar innilega að hún komist þangað ....það á á eftir að koma í ljós...Smile Eins og einhverjir vita þá hefur hún verið að spila handbolta í vetur og spilað bæði með 4 og 3ja flokk......nú í maí var hún valin í 28 manna úrtak í landslið kvenna undir 17 ára og mín kona var nú  heldur en ekki kát með þetta ...þessi hópur æfði alla síðustu helgi og síðan verða valdar 22 úr þessum hópi til að æfa saman næsta vetur........Grin í apríl var óskað eftir því við hana að hún tæki við hlutverki í Kardimommubænum í júní og fór hún í dag og leikur í tveimur síðustu sýningum fyrir sumarfrí ...síðan tekur hún upp þráðinn í lok ágúst....Smile Hún hefur verið að talsetja undanfarið og síðan fékk hún vinnu í leikskólanum mínum á vegum vinnuskólans...

Það er allt gott að frétta af Palla og Herdísi það fjölgar dýrum á heimilinu hjá þeim ...fyrir áttu þau naggrísina Hákoníu og Daðínu en nú hefur páfagaukurinn Jakob bæst í hópinn.....Grin Palli lagði af stað í leiðangur með Bjarna Sæmundssyni þann 11.júní og verður í 15 daga ...það á að mynda kórala suð-austur af landinu....það er hægt að fylgjast með ferðum skipsins á www.hafro.is

Nonni og Tedda eru á rólegum nótum ...skólanum var að ljúka hjá Nonna og var hann í námsferð í Barselona með kennurum Selásskóla  í síðustu viku.......hann sagðist ekki vilja kenna í skóla á Spáni.... annars verður hann að þjálfa alla daga í sumar bæði 7.flokk og 4. flokk. Tedda er að vinna í sumar og mun svo halda áfram námi í haust.

Þórður og Emilie koma til landsins þann 1.júlí og verða í 20 daga......Þórður hefur fengið inngöngu í  menntaskóla í Kaupmannahöfn og ætlar að klára stúdentspróf þaðan......við foreldrarnir erum afskaplega ánægð með þá ákvörðun......Grin 

Það sem er framundan hjá okkur er ættarmót að Laugum í Sælingsdal og mun minn leggur í fjölskyldunni fjölmenna.....W00t Þaðan förum við vestur á Bíldudal. Gulli bróðir hefur lánað mér húsið sitt því Laugardalurinn verður upptekin á þeim tíma sem ég gæti komist þangað...Þórður, Emilie og Ólöf verða með okkur ........við ætlum að stoppa þar í ca. 5-7 daga og far svo norður á Ólafsfjörð.....förum líkleg svolítið eftir veðri....en okkur er farið að hlakka til að komast í sumarfrí......Cool 

Jæja látum þetta gott heita núna  en munið:

                                                   " við veljum okkur viðhorf"

 


Af þessum bæ er allt gott að frétta ........

nóg hefur verið að gera undanfarið og virðist ekkert lát á því ......Heimsætan er nú ávalt númer eitt hér og veit hún vel af því .......Wink ég biði ekki í þetta ef við værum  með  fleiri ung börn á heimilinu.....enda nýtur hún þess til fullnustu að vera....... baaaarrrra ein með okkur.....Grin  Eins og ég sagði í síðasta bloggi .......þá fékk hún sér hárlengingar .......Haloþað gekk vel í fyrstu en svo kom að því að það losnuðu nokkrar og mín kona var ekki með hýrri há því hún komst ekki strax á hárgreiðslustofuna til að láta laga þetta .......Frownhún hélt greyið að hún hefði gert eitthvað vitlaust ...og var alveg ómöguleg ...en þetta var svo lagað og mín kona í skýjunum af gleði aftur .......Smileþað kom í ljós að neðstu lengingarnar höfðu ekki verið festar nógu vel en nú er allt eins og það á að vera....... Heartég dáist að því hvað hún nennir að sinna þessu hári  vel......því það er mikil vinna að vera með svona sítt hár... Tounge

4.fl kvenna í Fylki varð deildarmeistari í handbolta nú á dögunum og eru þær þá búnar að vinna 3 bikara af 4 í vetur Reykjavíkurbikarinn, Bikarkeppnisbikarinn og deildarbikarinn   ....eiga bara eftir að vinna Íslandsmeistaratitilinn ......Halonú fara í hönd úrslitaleikir um þann bikar og verða fyrstu  leikirnir 16.apríl en þá verða 8 liða úrslit og síðan 4 liða og loks úrslitakeppni ......og nú er bara að standa sig til enda....þær geta þetta vel.

Sönglist var að ljúka nú fyrir páska og var söngleikjadeildin með frábæra sýningu ....var settur upp kabarett með ýmsum söngleikjalögum og atriðum og endað á Abba syrpu......þannig að nú er komið frí fram á haustið.... en mín kona ætlar að halda áfram í Sönglist....ég held að Erla Rut losni bara ekki við þessa krakka og verði stöðugt að bæta inn nýjungum því krakkarnir vilja ekki hætta........Grin   Talsetningarnar halda áfram og Kardimommubærinn bætist við eftir páska......þannig að það er nóg að gera ennþá hjá minni........og í góðviðrinu í dag tók hún sig til og hjólaði alla leið niður í Öskjuhlíð og til baka ......Tounge 

Við fórum norður á Sauðárkrók um helgina síðustu í fermingarveisluna hans Arnórs Þórðarsonar .....og var það  góð ferð norður........Við gistum í Varmahlíð í sumarbústað sem Þórður hafði tekið á leigu til að hýsa fjölskylduna .......Winkvið gistum bara eina nótt.... komum á laugardagskvöldið því við vorum í annarri fermingarveislu á laugardeginum hér í bænum, fermingarveislunni hennar Jóhönnu systurdóttur Steina svo það var nóg um að vara hjá okkur þessa helgina........

Nú er ljóst að Þórður og Emilie koma til Íslands dagana 1-20 júlí í sumar og verða með á ættarmótinu að Laugum í Sælingsdal....síðan höfum við ákveðið að fara vestur í framhaldi af ættarmótinu og vera í allavega viku og erum búin að fá lánað húsið þeirra  Gulla og Bryndísar á Bíldudal því Laugardalurinn er upptekinn.....Smile

Við tókum þann pólinn í hæðina að vera bara heima á rólegum nótum þessa páskafrídaga ...kannski að fara í bíltúr .....fer eftir veðrinu....Smile dunda eitthvað við að snurfusa í kringum sig..... eða bara leggja sig...... eða bara ekki neitt..........Halo

Látum gott heita í bili ..........Wink


Fréttir af fjölskyldunni.....

Þetta eru orðnir  nokkurskonar frétta pistlar af fjölskyldunni hjá mér ...eða bara dagbók......en það er nú í góðu lagi.....Þessi vika hefur liðið ansi hratt ...það var bara mánudagur og föstudagur.......Tounge en ég er líka búin að vera óskaplega löt eitthvað og lítið gert.....dreif mig til læknis á mánudag eftir að hafa farið nokkrum sinnum í blóðþrýstingsmælingu .....og viti menn ég er komin á lyf eins og líklega hálf þjóðin við blóðþrýstingi annars var bara ekkert að mér og allar mælingar í góðu lagi.....Wink ... ég er nú samt ekki sátt við að þurfa að taka lyf......Frown 

Eins og alltaf er allt á ferð og flugi í kringum Ólöfu hún hefur verið að talsetja í vikunni og spila handbolta, þeim gengur enn vel í handboltanum eru  efstar í riðlinum og allar líkur á að þær vinni deildina með sama áframhaldi.......Tounge  Selma Björns hafði samband við hana og bað hana að koma til liðs við Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu ...það eru komnar svo margar sýningar að það vantar að bæta við krökkum til að jafna álagið ....og að sjálfsögðu sagið mín já .....Haloekki málið að hoppa inní leiksýningu í þjóðleikhúsinu......Grin Daman hefur ekki látið laust né fast með að fá hárlengingar ....hún hefur verið að nota hárlengingar sem smelltar eru í hárið en hún vildi fá lengingar sem hún þyrfti ekki alltaf að vera að taka úr og setja í .....svo nú var látið til skara skríða í gær og daman er nú með sítt hár.........hún borgaði þetta sjálf ...enda er þetta dýrt ....en þetta er hár með ábyrgð í 1 1/2 ár og er alveg ótrúlega eðlilegt......enda ekta hár....Wink

Ég talaði við Þórð í vikunni og var mjög gott hljóð í honum . Hann fór og talaði við námsráðgjafa í menntaskólanum sem hann er búin að skrá sig í og var bara mjög ánægður eftir það.....hann fær svar í apríl um það hvort hann þarf að taka einhver inntökupróf þá verður það líklega enska og stærðfræði til að sjá hvar hann stendur í þeim fögum annars er hann  komin inn í skólann og byrjar í haust ......það er eins og það hafi létta yfir honum við að taka þessa ákvörðun.....Wink

Allt er gott að frétta af Palla og Herdísi þau una sér vel á Ísafirði ....tala um ótrúlega veðursæld og þó veður hafi verið vitlaus fyrir vestan oft í vetur þá nær það ekki alltaf inn Ísafjörð....allavega eru þau að læra á dreifbýlið.....Smile 

Nonni og Tedda eru bara á sínu róli ......vinna og skóli....Tounge

Veður hefur verið ágætt  undanfarna daga, hlýtt  en gengið á með rigningu eða svona vor í lofti....Lóan er komin.....en það á nú að kólna í næstu viku og í dag er spáð stormi sunnan og vestanlands, þannig að enn eru sviptingar í veðrinu......Woundering

Látum gott heita í bili kv. Sigga


Pistill dagsins....

Það er nóg að gera þessa dagana ...við stöllur fórum á Queen tónleikana og skemmtum okkur ágætlega...... Wink þó voru þeir aðeins öðruvísi en ég átti von á ......FootinMouth hefði viljað heyra meira af þekktustu lögum hljómsveitarinnar ...annars gerðu krakkarnir þetta ágætleg og Hera var frábær....Grin  Það var handboltaleikur hjá Ólöfu í gær á móti Haukum ...lið sem ég á svo erfitt með að líta réttum augum því mér finnst þær leika svo ruddalegan leik.....Frown  og mér er góðfúslega bent á að handbolti sé nú enginn ballett.....með mjúkum strokum...heldur á að taka á því Errm ........en stelpurnar okkar unnu þetta náttúrulega.....Smile 

Ég talaði við Palla í morgun og sagði hann að veðrið væri búið að vera leiðinlegt þar vestra...enn er snjóflóðahætta á norðanverðum vestfjörðum en þó mest á Bolungavík..... en þau láta vel af sér. 

Það kom skeyti frá Þórði hann segir að þeir séu búnir að slóa bara undanfarna daga og lítil veiði hafi verið vegna veðurs og hann sé bara farin að telja niður dagana að koma í land og fá smá frí. Smile

Gulli hefur ekki farið á sjó alla vikuna bæði vegna veðurs og svo hefur hluti áhafnarinnar ekki verið í standi til að fara á sjó .......Blush  Þau ætluðu vestur nú um helgina  en ég hef ekki heyrt hvort þau hafi farið því veðrið hefur verið alveg vitlaust fyrir vestan og hér fyrir sunnan líka...

Kveð að sinni ....Sigga

 


Dagurinn og vegurinn.....

hann líður áfram tíminn og full hratt finnst mér.......nú eru liðnir nokkrir dagar frá "helginni stóru"...dóttirin búin að jafna sig eftir afmælisveisluna.... sem gekk ljómandi vel ....ég hefði átta að hafa meiri áhyggjur........Grin en heilsan hefur ekki verið góð hjá dömunni,  nú þegar líða tók á vikuna.....hún er hund kvefuð og kvarta um í hálsi ....en virðist ekki vera með hita...þó fór hún  að sofa greyið nú um kl. 21.00. Við sjáum til í fyrramálið hvernig hún verður.  Þetta eru nú ekki heppilegustu veikindin þegar atvinnutækið er röddin....Frown   Hún er nú að talsetja 9 þætti af Bratts og síðan duttu inn 10 þættirnir um ameríska drekann.......hún var nú farin að halda  að Sýrland hefði gleymt sér ....en svona er þetta hlutirnir gerast allt í einu ....og það líkar minni.  Hún fór í prufuna vegna Grease og það voru um 300 manns sem fengu að spreyta sig ....en hún sagði strax að hún ætti nú lítinn séns í þetta .... Winken það var gaman að fara.

Þórður minn tilkynnti mér að hann væri búin að sækja um menntaskóla í Danmörku og ætlar hann að klára stúdentsprófið þar.....hann er búin að eiga lögheimili í Danmörku í tvö ár í sumar og þá á hann kost á að fá námsmannastyrk sem allir nemendur í framhaldsskólum  þar fá.....hann er búin að sjá að þó hann haldi áfram að læra á saxafón þá þarf hann að klára stúdentsprófið.... Smile

Pabbi og mamma höfðu samband í gær frá Kanarí og sögðu frá því að dagurinn í gær hefði verið fyrsti dagurinn sem hitinn fer upp undir 30°...það hefur verið frekar kalt undanfarna viku....annars var allt í góðum gír þar......og allir hressir...Cool 

Það er ekkert að frétta af Þórði bróður síðan fyrir helgi, en líklega fer hann að send mér línur í tölvupóstinum.........Wink

Gulli hefur ekki farið á sjó þessa viku...það hafa verið veikindi í gangi hjá skipshöfninni...en líkleg fer hann í fyrramálið.....

Maður fylgist grannt með fréttum af vestfjörðunum því það eru viðvaranir vegna snjóflóðahættu og þó krakkarnir búi á öruggum stað  .....undir snjóflóðagarðinum á Ísafirði ....þá finnast mér þetta óþægilegar fréttir.......Frown

Ég, Bryndís og Anna Birna ætlum að fara á Queen tónleika í Fífunni annað kvöld, því Doddi er í skammtímavistuninni og tækifæri fyrir þær að skreppa út....okkur hlakkar mikið til ...ég held að þetta verði flottir tónleikar....Grin

Kveð að sinni ...Sigga

 


Alltaf eitthvað að gerast .....

jæja þá eru nú nokkrir dagar liðnir síðan ég skrifaði síðast.....og margt búið að gerast......Grin  fyrst að telja er að Ólöf tók söngvakeppni Samfés með stæl....þau krakkarnir hafa síðan troðið nokkrum sinnum upp með lagið og vakið stormandi lukku......1.mars varð svo daman bikarmeistari í 4.fl.k í handbolta og átti stórleik þar....Smile Nú, hún fékk tilboð að tala inn á bíómynd og sían fær hún að fara í prufu vegna Grease sýningarinnar sem á að sýna í sumar...þannig að hún er á fljúgandi ferð.....En svo við snúum okkur að því sem frúin tók sér fyrir hendur .....þá skellti hún sér til Kanarí.......já Kanarí....það kom til þannig að það hætti einn við að fara og mér var boðið að hoppa inní ....Tounge og ég slóg til...Hafliði bróðir og hans fjölskylda fóru og svo Erna og Dómhildur frænkur mína ásamt manni Ernu og syni Dómhildar...og að sjálfsögðu fórum við sumpart til að heimsækja foreldra okkar sem alltaf eru á sama tíma á Kanarí.......InLove þau náttúrulega fá engan frið því út því við fáum ekki pönnukökur í 7 vikur hér heima þá förum við bara og borðum þær hjá þeim á Kanarí......Grin  Ferðin var fín þó hitinn hefði alveg mátt vera örlítið hærri....síðan var flugið heim nokkuð langt fyrir minn smekk......það tók 6og hálfan tíma flugið sjálft......fyrir svo utan að seinkun var um 5 tíma vegna veðurs í Evrópu....ferðalagið tók okkur því alls 16 klst. sem er heldur langt fyrir minn smekk....Cool

Þegar heim kom var nokkur þreyta í liðinu ´.....því var það nú svolítið kvíðvænlegt að dóttirin sem fyllti 16 árin nú 7 mars.... ákvað á föstudag að draga frestun á afmælisveislu til baka...... því komið var í ljós að það væri barasta engin dagur laus til að halda afmæli fyrr en einhverntíman í apríl...og það var of langt......svo frúin fór að baka ......jú daman vildi hafa kökuveislu fyrir vinina........þá var nú komið að fjöldanum...við vorum búin að heyra minnst á 20 vini.......en vinirnir sem hún varð að bjóða voru komnir í 35!!!!!Gasp.......við settumst niður og fórum í gegnum þetta með henni og viti menn ...hópurinn sem hún er að umgangast nánast daglega eða í viku hverri telur 35 Wink......svo nú varð að bretta upp ermar......en það var annað...... við áttum ekki að vera heima......afmælið var frá kl. 20 -24 og mér leist nú ekki á þetta ....Wounderingvildi hún ekki fá smá hjálp með kökurnar ...taka af borðum...setja fram og svona aðstoð ....NEI... hún taldi sig geta þetta....þá var spurningin... hvert ættum við að fara Frown.....ættum við að keyra um hverfið og fylgjast öðru hvoru með....nei niðurstaðan var að treyst á að allt gengi vel....því  þetta voru góðir krakkar,  allt tónlistar og íþróttafólk og ekki kennt við neina vitleysu.....svo við töluðum við nágrana okkar og sögðum þeim hvað til stæði og að líklega yrði einhver háfaði því það átti að spila á hljóðfæri og syngja......lagðar voru línur með að hleypa engum inn sem ekki var boðið og ef slíkt gerðist þá átti að hringja í okkur og líka að tala við nágrannana........svo við fórum og heimsóttum Gulla bróður og  Bryndísi á meðan .....hringdi ég reglulega og kannaði stöðuna Wink...við komum heim rúmlega 12 á miðnætti og þá voru krakkarnir að fara heim  og foreldrar að sækja þau .......það var nokkur hávaði þegar við komum.... tónlistin komin í hærra lag .....en viti menn það gekk allt vel....umgengnin kannski ekki alveg eins og ég hefði haft það en daman fór í að taka til og ganga frá og allir mjög glaðir með þessa veislu.

Ég fékk bréf frá Þórði bróður og er hann komin út í sjó, þeir eru á Reykjaneshrygg og voru að byrja veiðar....annars var einhver pest í gangi um borð og nokkrir skipverjar lagstir í rúmið.....sjálfsagt lítið spennandi að vera veikur til sjós...Crying

Af Palla og Herdísi er allt gott að frétta ...þau voru send heim úr vinnu vegna snjóflóðahættu í vikunni ....þannig að þau eru búin að kynnast hvernig vetur geta verið á Íslandi þennan stutta tíma sem þau hafa búið á Ísafirði....annars er Herdís í bænum þessa helgi ...kom til að halda upp á afmælið sitt með vinkonum ....en hún varð 30 ára núna 5 mars.....og ekki viðrar vel til flugs vestur því það á að athuga með flug seinni partinn.....Errm

Kveð að sinni Sigga


Jæja þá er það söngvakeppni Samfés.......:)

Nú er stóri dagurinn runninn upp hjá heimasætunni....Grin Samfés söngvakeppnin verður í dag og hún á að keppa fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Ársel...... þetta var allt á leið í óefni á fimmtudag .....Cryingen þá fór mín að finna til í hálsi og allt var set af stað til að bægja óværunni frá........  Pinchþað var hálsbrjósykur, hósta saft, strepsels, klæða sig vel, drekka heitt ........Tounge mín lagði á sig að drekka heitt te........Sickfannst það ekki gott... ballið hjá Samfés var í gær og það var rökrætt að það þyrfti líkleg að velja og hafna......Errmhvort væri mikilvægara að far á ballið eða...keppnin í dag....mín fór á ballið en hringdi kl. 20.45 og vildi láta sækja sig þetta væri orðið gott og hún ætlaði ekki að taka meiri áhættu......Smilesvo hún var sótt ...og bara eins gott hún drakk heitt og fór svo að sofa ....og viti menn hún var bara í ágætis standi þegar hún vaknað .......InLovesagði að það væri smá svona ryk í röddinni en það gæfi laginu bara karakter....:)  svo hún lagði af stað fyrir kl.9 því hennar atriði er númer 3 í röðinni í dag og það verður bein útsending á Rás 2 kl. 13.00 ...svo segjum við bara... toy..toy..toy.

Hún vann......Grin

http://dagskra.ruv.is/ras2/4461290/2009/02/21/

Hún söng 3ja lagið og svo er það sungið aftur í lokin.....Halo

Dagurinn verður svo ekki búin þegar þessu söngstandi lýkur nei...þá er að gera seig klára fyrir Vestmanneyjar .....Woundering 3 og 4 fl. eru að fara að keppa í Vestmanneyjum á morgun og fara í kvöld með Herjólfi til eyja .......Frownef það verður þá farið því spáin er ekki gæfuleg.........hreinlega vona ég að þessu verði bara frestað.....Smile.

Læt þetta gott heita í bili


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband